Íslendingar borða mest af sætindum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 20. janúar 2017 07:00 Íslensk og finnsk börn borða mest af sykri. Vísir/Stefán
Meira er neytt af sælgæti, kökum og gosdrykkjum á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum. Neyslan hefur ekki minnkað frá árinu 2011 eins og gerst hefur hjá öðrum Norðurlandaþjóðum að Svíþjóð undanskilinni þar sem neyslan hefur staðið í stað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um heilsuhegðun Norðurlandabúa sem greint er frá á vef landlæknis. Embættið stóð fyrir könnun á mataræði, hreyfingu og holdafari hér á landi og var könnunin í samstarfi við rannsakendur frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. Önnur umferð fór fram haustið 2014 en fyrri umferð haustið 2011. Íslendingar borða minnst af grænmeti og ávöxtum miðað við önnur norræn ríki og hefur neyslan ekkert breyst á tímabilinu. Sömuleiðis borða Íslendingar minnst af heilkornabrauði og hefur neyslan minnkað milli ára. Fiskneysla er aftur á móti mest á Íslandi og er óbreytt milli kannana. Hlutfall Íslendinga sem borða óhollan mat hefur hækkað úr 19 prósentum í 25 prósent en meðal Norðurlandabúa í heild hefur hlutfallið hækkað úr 18 prósentum í 22. Þrátt fyrir jákvæða þróun í mataræði barna hefur félagslegur ójöfnuður í mataræði aukist, að því er segir í frétt á vef landlæknis. Þar kemur fram að niðurstöður varðandi mataræði barna á Norðurlöndum séu jákvæðari en hjá fullorðnum. Tæplega 15 prósent norrænna barna neyta mataræðis sem telst óhollt og hefur það ekki breyst frá 2011. Hlutfallið á Íslandi er sambærilegt við önnur norræn ríki. Tvöfalt fleiri börn foreldra með minnstu menntun teljast hins vegar borða óhollt 2014 heldur en 2011, það er 25 prósent miðað við 12 prósent 2011. Færri börn foreldra með mestu menntun teljast borða óhollt 2014 en 2011. Hlutfall þeirra sem hreyfa sig ekkert er hæst á Íslandi og í Noregi árið 2014. Hefur það hækkað hér á landi úr 14 prósentum í 17 prósent á tímabilinu. Hlutfall 18 til 24 ára Norðurlandabúa sem hreyfa sig ekkert hefur nær tvöfaldast og er nú sambærilegt við eldri aldurshópa eða um 12 prósent 2014. Á Íslandi er hærra hlutfall fullorðinna sem teljast of feitir en annars staðar á Norðurlöndunum en í heildina flokkast fleiri fullorðnir of feitir á Norðurlöndunum 2014 heldur en 2011. Lægst tíðni áfengisneyslu og ölvunardrykkju er á Íslandi. Danir drekka oftast en Norðmenn drekka sig oftast ölvaða. Í könnununum var safnað gögnum um samtals 4.949 börn á aldrinum 7-12 ára og 17.775 fullorðna á aldrinum 18-65 ára á Norðurlöndunum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira