Verðmæti úr 4.000 tonnum af roði unnin með grænni orku Svavar Hávarðsson skrifar 20. janúar 2017 07:00 Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Codlands.
Frumkvöðlafyrirtækið Codland ehf. og fjögur af stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins munu byggja og reka verksmiðju á Reykjanesi sem nýtir hráefni frá sjávarútvegi sem annars nýtist illa eða ekki hérlendis. Viljayfirlýsing liggur fyrir um svokallað Heilsuvöruhús á Reykjanesi þar sem þróun og framleiðsla fer fram. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um einn milljarður íslenskra króna. Í fyrstu er reiknað með að aðalframleiðsluvara Heilsuvöruhúss verði kollagen-prótein unnið úr fiskroði. Afurðin verður meðal annars notuð í heilsufæði, fæðubótarefni, snyrtivörur og lyf. Nýtt verður orka frá Reykjanesvirkjun enda verður verksmiðjan sett upp í næsta nágrenni við virkjunina, ef áætlanir ganga eftir. Heilsuvöruhús er í eigu HB Granda, Samherja og fyrirtækjanna Vísis og Þorbjarnar í Grindavík sem eiga Codland. Áætlað er að Heilsuvöruhúsið taki til starfa í byrjun árs 2018, en fyrsta skóflustungan verði tekin á vormánuðum. Með þátttöku fjögurra öflugra sjávarútvegsfyrirtækja er hráefnisöflun Heilsuvöruhússins tryggð, segir Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Codlands. „Við munum vinna úr fjögur þúsund tonnum af fiskroði á ári sem gefur okkur 400 tonn af kollageni. Slíkt magn nýtist ekki innanlands og mikið er því ætlað til útflutnings, en möguleikar til nýtingar hér innanlands eru fjölþættir í framtíðinni.“ Eins og Fréttablaðið greindi frá á sínum tíma voru fyrstu skref þessa verkefnis tekin árið 2012 í samstarfi Íslenska sjávarklasans og Collagen ehf., sem hóf þá samstarf við fyrirtæki á Spáni við að vinna kollagen úr fiskroði. Þá strax var stefnt á að reisa verksmiðju á Reykjanesi á vegum Codlands, svo Heilsuvöruhús er í raun lyktir þess samstarfsverkefnis Sjávarklasans og Collagen. Heilsuvöruhús krefst ekki margra starfsmanna, heldur skapast hátæknistörf og þróun fullvinnslu í sjávarútvegi á Íslandi tekur stórt skref um leið. Hröð þróun hefur orðið í framleiðsluaðferðum kollagens á síðustu árum og eftirspurn eftir vistvænum afurðum á þessu sviði hefur aukist jafnt og þétt um allan heim. „Þau fyrirtæki sem sameinast um þetta telja að hægt sé að samnýta þá sérþekkingu sem þarna er til staðar og skapa verðmæti sem skila aðgangi að nýjum mörkuðum,“ segir Tómas Þór. „Við erum mjög spennt fyrir að þróa okkar eigin vörur, eins og drykkinn okkar Alda Iceland. Við gerðum auk þess samstarfssamning við Mjólkursamsöluna um að kanna hvernig kollagen blandast við mysupróteinið þeirra.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira