Gjörbreytt viðhorf til eftirlitsmyndavéla Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. janúar 2017 07:00 Ein af nítján öryggismyndavélum í bænum er framan á Center Hotels. Beðið er eftir því að hægt sé að setja fleiri myndavélar upp. Vísir/Vilhelm
Neyðarlínan er með sex eftirlitsmyndavélar í geymslu sem beðið er eftir að verði settar upp miðsvæðis í Reykjavík. Þetta segir Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að vélarnar verði settar upp á næstu mánuðum og nú liggi fyrir tillögur um átta nýja staði. Samkvæmt samkomulagi um rekstur og viðhald eftirlitsmyndavéla milli lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, Neyðarlínunnar og Reykjavíkurborgar tekur Reykjavíkurborg að sér að kaupa eftirlitsmyndavélar, Neyðarlína sér um uppsetningu, viðhald þeirra og flutning merkis og lögreglan sér um endabúnað vegna viðtöku merkis, vöktun og viðbragð.Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar.VísirÞórhallur segir að það sé lögreglunnar að ákveða hvar vélarnar átta verða settar upp og Neyðarlínan bregðist við því. „Það er verið að fara yfir stöðuna, hvar fæst leyfi til að setja upp,“ segir Þórhallur. Í Fréttablaðinu í gær var sagt að eftirlitsmyndavélar hafi verið settar upp árið 1997. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði að fjárhagsstaða lögreglunnar væri slík að hann teldi útilokað að vélum hefði verið bætt við frá þeim tíma eða þær endurnýjaðar. Þetta kemur ekki heim og saman við fréttaflutning frá árinu 2012 af kaupum á nýjum myndavélum á þeim tíma. Þórhallur segir að í miðbænum séu núna nítján myndavélar. Tíu frá árinu 2012 og níu vélar sem eru tveggja ára gamlar eða yngri. „Og nú eru uppi hugmyndir um að fjölga þessu verulega og breyta um aðferðafræði. Myndavélar af fullkomnustu gerð kosta ekki mikið. Þessi myndavélavæðing í símum hefur alveg gjörbreytt þessu landslagi, þróunin hefur verið mjög hröð,“ segir hann. Þórhallur segir aftur á móti að viðhorf fólks hafi löngum verið neikvætt gagnvart eftirlitsmyndavélum og það hafi gert það erfiðara að koma myndavélunum fyrir. Viðhorfið sé hins vegar að breytast. „Það er himinn og haf á milli þess sem var fyrir fimm árum og núna,“ segir hann.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira