„Þetta eru sem sagt sketsa-þættir sem Steindi, Sveppi og Auddi skrifa saman,“ segir leikkonan Saga um Steypustöðina en hún fer með hlutverk í þáttunum. „Og ég, Ágústa Eva og María Guðmundsdóttir leikum kvenhlutverkin. Þetta eru mjög fyndnir og súrir sketsar,“ segir Saga spurð um hvernig þætti sé að ræða.
„Ég myndi segja að ég sé með leiksigur hvað varðar hissa-svip í þessum þáttum. Ég er alltaf alveg rosalega hissa á því sem strákarnir eru að gera. Uppáhaldssketsinn minn er þegar við Sveppi leikum par sem er að lýsa sínum fyrsta kossi. Þá geri ég líka alls konar svipbrigði sem ég held að muni öll slá í gegn. En uppáhaldið mitt í öllu ferlinu er þegar ég fæ að leika afgreiðslukonu í Fjarðarkaupum. Það er vissulega aukahlutverk en konan sem ég leik er goth-ari. Það augnablik endist kannski í fimm sekúndur, fimm yndislegar sekúndur,“ segir Saga sem gæti trúað að hún sé goth-ari inn við beinið. Henni þykir þó of seint að taka upp nýjan stíl núna. „Já, ég er komin á þann aldur að það er eiginlega of seint fyrir mig núna að prófa að vera goth-ari. Ég þarf að hafa afsökun fyrir að setja á mig svartan varalit og hleypa myrkrinu í gegn. En ég dýrkaði þetta hlutverk! Mig dreymir orðið um að sminka yfir freknurnar og leika eitthvað „dark“ og ógeðslegt.“

Saga er vongóð um að þættirnir leggist vel í landsmenn. „Sko, á forsýningunni þá var ég svolítið stressuð. En Ágústa Eva kom til mín og spurði mig af hverju og þá áttaði ég mig. Ég meina, við skrifum þetta ekki, þannig að ef þetta fokkast allt upp þá segjum við: „Þeir sögðu mér að segja þetta.“ Núna er ég ekkert stressuð, bara spennt. Ég er fullviss um að þetta mun leggjast vel í alla. Svo vona ég að ég fái að vera með í skrifteyminu næst, til að auka fjölbreytileikann þar.“