Boðin staðgreiðsla fyrir Laugaveg 31 Benedikt Bóas skrifar 8. mars 2017 07:00 Kirkjan mun áfram vera í húsinu við Laugaveg 31 enda hefur verið ákveðið að hætta við sölu. vísir/ernir
Tilboð M3 Capital ehf. í Kirkjuhúsið var staðgreiðslutilboð en ekki hefur fengist upp gefið hvað tilboðið hljóðaði upp á. Kirkjuráð hafnaði því, og reyndar öllum öðrum tilboðum, á þeirri forsendu að þau uppfylltu ekki væntingar. Þegar húsnæðið við Laugaveg 31 var auglýst til sölu var búist við að eignin færi á yfir milljarð. Stefán Magnússon, sr. Elínborg Gísladóttir, Agnes Sigurðardóttir, Svana Helen Björnsdóttir og sr. Gísli Gunnarsson eru í kirkjuráði.mynd/Kirkjan Sverrir Kristinsson, fasteignasali hjá Eignamiðlun, sagði þá að ekki væri hægt að áætla verðið út frá meðalverði á atvinnuhúsnæði í miðbænum. „Þetta er eitt allra fallegasta húsið í miðborg Reykjavíkur og er ein af þessum gulleignum í bænum – þetta fer í hæsta flokk,“ sagði Sverrir í lok janúar þegar húsið var auglýst til sölu. Lengi hefur verið rætt innan raða kirkjunnar að selja húsið en það er 1.542 fermetrar, á fjórum hæðum með kjallara og komið að viðhaldi. Klofningur varð í atkvæðagreiðslu um söluna í kirkjuráði síðastliðinn föstudag. Þrír af fimm ráðsmönnum greiddu tillögu Agnesar Sigurðardóttur biskups atkvæði, en hún er forseti ráðsins. Gísli Gunnarsson sat hjá og Stefán Magnússon var á móti. Stefán segir að tilboðið hafi verið gott og engin ástæða til að hafna því. „Þetta mál blasir við mér þannig að það er búið að tala lengi um að selja eignina og kirkjuráð ákvað í janúar að auglýsa hana til sölu. Að sjálfsögðu var það bundið því að það kæmi ásættanlegt tilboð. Það tilboð sem var hæst var mjög ásættanlegt, gott og ástæða til að taka því,“ segir hann. Stefán vildi taka tilboðinu og var sá eini sem hafði þann vilja. „Það er miður að þetta fór svona.“
Þjóðkirkjan Tengdar fréttir Stór fasteignafélög bítast um Kirkjuhúsið á Laugavegi 31 „Það komu fram ýmsar pælingar um hvað hugsanlegt væri að fá fyrir eignina og við getum sagt að tilboðin séu á því róli,“ segir Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, um tilboð í Laugaveg 31 sem hýsir Kirkjuhúsið. 17. febrúar 2017 07:00 Klofið kirkjuráð hafnar öllum tilboðum í stórhýsið á Laugavegi 31 Klofningur varð í atkvæðagreiðslu um málið í kirkjuráði síðastliðinn föstudag. 7. mars 2017 06:00 Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira
Stór fasteignafélög bítast um Kirkjuhúsið á Laugavegi 31 „Það komu fram ýmsar pælingar um hvað hugsanlegt væri að fá fyrir eignina og við getum sagt að tilboðin séu á því róli,“ segir Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, um tilboð í Laugaveg 31 sem hýsir Kirkjuhúsið. 17. febrúar 2017 07:00
Klofið kirkjuráð hafnar öllum tilboðum í stórhýsið á Laugavegi 31 Klofningur varð í atkvæðagreiðslu um málið í kirkjuráði síðastliðinn föstudag. 7. mars 2017 06:00