Vongóð þrátt fyrir mannskæðustu árás ársins Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. október 2017 06:44 Svona var um að litast í Paktia eftir árás Talíbana í gær. Vísir/EPA
Að minnsta kosti 74 liggja í valnum eftir að Talíbanar í Afganistan gerðu árásir á nokkrum stöðum í landinu á sama tíma í gær. Hundruð eru særð að auki og á meðal hinna látnu er háttsettur lögreglustjóri. Hann féll í mannskæðustu árásinni sem gerð var á lögreglustöð í borginni Gardez, þar sem tuttugu og einn lögreglumaður lét lífið og fjörutíu og átta særðust. Margir óbreyttir borgarar voru í byggingunni þegar árásin var gerð en þangað leggur fólk leið sína til að endurnýja vegabréfin sín. Talið er að tuttugu almennir borgarar hafi fallið í þeirri árás og rúmlega hundrað liggja sárir. Tveimur bílum, hlöðnum sprengiefni, var ekið á lögreglustöðina og í kjölfarið fylgdi hópur vopnaðra manna, klæddir sprengjubeltum, sem skaut á allt sem fyrir varð. Talið er að þrettán árásarmenn hafi fallið. Starfandi innanríkisráðherra landsins segir árásirnar í gær vera þær stærstu sem gerðar hafa verið á þessu ári. Þrátt fyrir umfang árásarinnar í gær segjast stjórnvöld hafa mikla trú á getu sinni til að „berjast við hryðjuverkamenn og eyða þeim úr Afganistan.“ Sveitir Talíbana hafi beðið mikla ósigra gegn stjórnarhernum síðustu mánuði og væru með þessum aðgerðum að reyna að ná fram hefndnum.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira