Réðu 104 sjálfboðaliða þótt lagaheimild vanti Sveinn Arnarsson skrifar 28. janúar 2017 07:00 Mörg verkefni voru í stígagerð vegna fjölgunar ferðamanna til landsins. vísir/vilhelm
Umhverfisstofnun réði til sín rúmlega eitt hundrað sjálfboðaliða í fyrra og unnu þeir 1.750 dagsverk fyrir stofnunina við stígagerð og náttúruvernd. Einkaaðilum er ekki leyfilegt að ráða sjálfboðaliða til vinnu og Umhverfisstofnun getur ekki bent á lög sem heimili stofnuninni að ráða til sín sjálfboðaliða til starfa. Í svari Umhverfisstofnunar við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að lög um náttúruvernd fjalli ekki með beinum hætti um störf sjálfboðaliða. „Stofnunin hefur undanfarin 40 ár verið með sjálfboðaliða á sínum snærum í verkefnum tengdum náttúruvernd. Umhverfisstofnun annast umsjón og rekstur náttúrverndarsvæða samkvæmt lögum auk þess að sinna fræðsluhlutverki,“ segir í svari Ólafs Jónssonar, sviðsstjóra náttúrusviðs Umhverfisstofnunar.Kristín Linda árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar.Síðastliðið sumar var eiganda gistiheimilis í Skjaldarvík norðan Akureyrar bannað að ráða til sín sjálfboðaliða til starfa á gistiheimilinu. Voru þar sjálfboðaliðar á sérstökum háskólastyrkjum, svokölluðum Erasmus-styrkjum, sem komu í Skjaldarvík, unnu við gistiheimilið og unnu í sumum tilvikum að meistaraverkefnum í erlendum háskóla. Var gistiheimilinu gert að greiða þeim laun fyrir vinnu sína. Samkvæmt lauslegum útreikningum sparar Umhverfisstofnun um 30 milljónir króna á lágmarkstaxta. Einnig fékk stofnunin 7,3 milljóna styrk árið 2015 svo tekjur koma einnig á móti. Ólafur segir störfin þannig að erfitt sé að fá verktaka til að vinna verkin og þau séu langt frá mannabyggðum. „Störf sjálfboðaliða hafa breyst töluvert undanfarin ár, ekki síst með ört vaxandi fjölgun ferðamanna. Í dag sinna sjálfboðaliðar nánast einvörðungu störfum þar sem erfitt er að fá verktaka til verksins, oft mannaflsfrek verkefni þar sem lítillar þekkingar eða reynslu er krafist, verkefni sem eru smá í sniðum, eða á svæðum fjarri byggð sem eru viðkvæm í eðli sínu og erfitt að koma tækjum að,“ segir Ólafur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fleiri fréttir Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Sjá meira