Ársverk sjálfboðaliða í að vinna gegn lúpínum Sveinn Arnarsson skrifar 30. janúar 2017 07:00 Birki og víðir vaxa upp úr lúpínubreiðum eftir því sem jarðvegurinn batnar vísir/gva
Allt að 270 vinnudögum sjálfboðaliða Umhverfisstofnunar var varið í fyrra til þess að fjarlægja lúpínu. „Þetta kann að hljóma sem há tala en oft eru um tíu manns í einu sem vinna að því að fjarlægja lúpínu eins og í Skaftafelli (Vatnajökulsþjóðgarði) og því eru vinnudagarnir fljótir að safnast saman,“ segir í svari Umhverfisstofnunar við fyrirspurn Fréttablaðsins.Pétur Halldórsson, upplýsingafulttrúi Skógræktar ríkisins.Lúpína er að líkindum umdeildasta planta í íslenskri plöntuflóru en miklum tíma er varið í það árlega að hefta útbreiðslu hennar eða fjarlægja úr íslensku landslagi. Umhverfisstofnun hafði á að skipa 104 sjálfboðaliðum í fyrra sem unnu samtals í 1.756 daga. Allt að fimmtán prósent þessa daga fóru í að útrýma lúpínu af svæðum þar sem lúpína er talin ekki eiga heima. „Samkvæmt reglugerð er öll ræktun útlendra tegunda óheimil á friðlýstum svæðum, landslagsgerðum er njóta sérstakrar verndar og alls staðar ofan 500 metra hæðar yfir sjó,“ segir í svari Umhverfisstofnunar. „Mörg friðlýst svæði njóta einnig verndar vegna sérstæðs landslags eða gróðurfars og því kann dreifing framandi ágengra planta að hafa áhrif á verndargildi viðkomandi svæða. Af þeim sökum hefur Umhverfisstofnun, sem umsjónaraðili friðlýstra svæða, séð um að fjarlægja lúpínu.“ Pétur Halldórsson, upplýsingafulltrúi Skógræktar ríkisins, segir þetta skjóta skökku við á tímum loftslagsbreytinga og hægt væri að nýta sjálfboðaliða til að safna birkifræjum til að breiða út birkiskóga inni í lúpínubreiðum. „Lúpína bætir næringarástand jarðvegs og því er upplagt að rækta íslenskt birki í lúpínubreiðum og nýta þannig þjónustu hennar. Á tímum loftslagsbreytinga er mikilvægt að efla gróðurþekju landsins. Almennur stuðningur er við það meðal landsmanna að breiða birkiskógana út á ný. Þörf er á vinnandi höndum til að safna fræi af birki, dreifa fræi og gróðursetja birkiplöntur.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira