Nýjasti atvinnumaður Íslendinga sá fyrsta körfuboltaleikinn fyrir fjórum árum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júní 2017 21:30
Miðherjinn stóri og stæðilegi, Tryggvi Snær Hlinason, er sem kunnugt er genginn í raðir Spánarmeistara Valencia frá Þór Ak. Tryggvi hefur náð ótrúlega langt á skömmum tíma en hann bara æft körfubolta í nokkur ár. Og það eru aðeins fjögur ár síðan hann sá körfuboltaleik í fyrsta sinn. „Þetta er þriðja sumarið mitt þannig að ég er búinn að vera þrjú og hálft ár,“ sagði Tryggvi í samtali við Kjartan Atla Kjartansson í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Ég fór í körfubolta til að halda mér í formi. Það var upphafið,“ bætti miðherjinn öflugi við. Tryggvi segir að vistaskiptin til Valencia hafi átt sér nokkuð langan aðdraganda. „Ég byrjaði að tala við þá síðasta sumar. Það var rólegt í vetur en stigmagnaðist eftir jólin. Síðustu tvær vikur hefur verið mikið í gangi,“ sagði Tryggvi sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Valencia. Jón Arnór Stefánsson lék með Valencia á þarsíðasta tímabili og hann benti forráðamönnum félagsins á Tryggva. „Hann er í raun sá sem kynnti þá fyrir mér. Hann er ástæðan fyrir því að þeir vita af mér yfir höfuð. Hann hjálpaði mér í gegnum þetta allt og það er algjör snilld að hafa hann,“ sagði Tryggvi sem horfði í fyrsta sinn á körfuboltaleik fyrir fjórum árum. Það var leikur Njarðvíkur og Tindastóls í yngri flokkunum. „Það var mjög skemmtilegt. Ég átti að spila með þeim og vissi ekkert hvernig körfubolti virkaði á þeim tíma. En það breyttist frekar hratt,“ sagði Tryggvi sem spilar núna með íslenska U-20 ára landsliðinu á æfingamóti sem fer fram hér á landi.
Körfubolti Tengdar fréttir Ísland tryggði sér sigurinn með því að skora síðustu sjö stigin Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann flottan sigur á Svíum, 58-61, í fyrsta leik sínum á fjögurra liða æfingamóti sem fer fram hér á landi. 19. júní 2017 22:09 Jón Arnór benti Spánarmeisturunum á Risann úr Bárðardalnum Jón Arnór Stefánsson lét sína gömlu félaga vita af Tryggva Snæ Hlinasyni. 19. júní 2017 07:30 Tryggvi til spænsku meistaranna Tryggvi Snær Hlinason, miðherjinn stóri og stæðilegi, er á leið til Spánarmeistara Valencia. 18. júní 2017 11:00 Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira
Ísland tryggði sér sigurinn með því að skora síðustu sjö stigin Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann flottan sigur á Svíum, 58-61, í fyrsta leik sínum á fjögurra liða æfingamóti sem fer fram hér á landi. 19. júní 2017 22:09
Jón Arnór benti Spánarmeisturunum á Risann úr Bárðardalnum Jón Arnór Stefánsson lét sína gömlu félaga vita af Tryggva Snæ Hlinasyni. 19. júní 2017 07:30
Tryggvi til spænsku meistaranna Tryggvi Snær Hlinason, miðherjinn stóri og stæðilegi, er á leið til Spánarmeistara Valencia. 18. júní 2017 11:00