Óttast óeirðir í kjölfar allsherjarkosninga í Kenía Jóhann Óli Eiðsson skrifar 1. ágúst 2017 06:00 Uhuru Kenyatta á kosningafundi í Naíróbí í Kenía. vísir/epa
Kosningar fara fram í Kenía eftir slétta viku. Augu heimsbyggðarinnar beinast að landinu vegna þeirra en óttast er að átök brjótist út í kjölfar kosninganna. Slíkt gerðist síðast fyrir tíu árum en rúmlega þúsund manns týndu lífi í átökunum. Í Kenía velja íbúar sér samtímis forseta, varaforseta og þing auk þess sem kosið er um ýmis embætti landsins. Forseti landsins, Uhuru Kenyatta, sækist eftir endurkjöri en hans helsti andstæðingur er Raila Odinga. Sitjandi forseti hefur sakað mótframbjóðanda sinn um að reyna að koma af stað vargöld í landinu en Odinga sakar forsetann um að ætla að hagræða úrslitunum. Odinga sakaði Kenyatta um að hafa átt við kosningakerfið í kosningunum árið 2013 en þeim ásökunum var hafnað af dómstólum landsins. Naíróbí, höfuðborg landsins, er næststærsta viðskiptaborg Austur-Afríku á eftir Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu. Erlendir fjárfestar eiga mikilla hagsmuna að gæta í landinu en þeir hafa dælt peningum í banka, ferðaþjónustu og fjarskiptageira landsins. Þeir bíða nú milli vonar og ótta enda líklegt talið að óeirðir brjótist út. Í gær bárust fregnir af því að yfirmaður í kosningastjórn landsins hefði fundist myrtur fyrir utan Naíróbí. Chris Msando hafði gegnt lykilhlutverki í að hanna rafrænt kosningakerfi sem verður notað í kosningunum til að koma í veg fyrir kosningasvindl. Óeirðir brutust út í landinu í árslok 2007 eftir umdeildar kosningar. Bardagar stóðu yfir í tvo mánuði. Yfir þúsund létust og talið er að allt að hálf milljón hafi flúið heimili sín.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira