Duterte ræðir erfið samskipti sín við „drullusokkinn“ son sinn atli ísleifsson skrifar 7. febrúar 2017 12:11 Rodrigo Duterte sver embættiseið síðasta sumar. Fyrir aftan má sjá þrjú börn hans, Sebastian, Sara og Paolo. Vísir/AFP
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, nýtti nýlega tækifærið og smánaði son sinn í ræðu þar sem forsetinn sagði hinn 29 ára sonur ekki hafa skilað sér heim í síðustu viku.BBC greinir frá því að málið hafi mikið verið á milli tannanna á fólki og hafi filippseyskir samfélagsmiðlar logað þar sem meðal annars er spurt af hverju forsetinn ákveði að ræða sín einkamál á opinberum vettvangi með þessum hætti. Forsetinn sagði Sebastian „Baste“ Duterte hafa „horfið“, en hann ræddi hann jafnframt einkalíf sonarins, sem er brimbrettakappi, og misheppnuð ástarsambönd hans. Sebastian greindi síðar frá því á Facebook að hann væri ekki týndur. „Góðan daginn, pabbi. Ekki hafa áhyggjur. Ég hef dvalið í hinu húsinu frá 1. febrúar,“ sagði Sebastian. Talsvert hefur áður verið fjallað um erfið samskipti þeirra feðga. „Yngsti sonur minn er drullusokkur. Hann er hættur að koma heim til sín,“ sagði forsetinn í ræðunni sem hann flutti síðastliðinn fimmtudag. Duterte bar Sebastian svo saman við eldri systkini sín, þau Söru og Paolo, sem bæði starfa í stjórnmálum í heimaborg Duterte-fjölskyldunnar, Davao. „Ég hef aldrei verið í neinum vandræðum með hin börnin mín sem standa sig vel,“ sagði Duterte.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira