Tíkin Tinna er öll Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. janúar 2017 19:06 Hundurinn Tinna er öll.
Hundurinn Tinna, sem týndist þann 29. desember síðastliðin er fundin, en hún fannst dauð við smábátahöfnina í Keflavík, að því er virðist af mannavöldum. Ágúst Ævar Guðbjörnsson, annar eiganda Tinnu, tilkynnti þetta á Facebook hópi sem tileinkaður var leitinni. Umfangsmikil leit hefur farið fram vegna málsins og höfðu eigendur meðal annars boðið 200 þúsund krónur í fundarlaun. Tinna var í pössun í Keflavík á meðan eigendur hennar voru í útlöndum en henni hafði verið útvegað pössun í gegnum Facebook hópinn Hundasamfélagið, þar sem hundaeigendur ræða ýmis málefni tengd dýrunum. Eigendur Tinnu, þau Ágúst og Andrea Björnsdóttir hafa lagt nótt við nýtan dag til leitar að hundinum.Sjá einnig: Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun„Nú í dag fannst Tinna okkar því miður látin við smábátahöfnina í Keflavík. Þar hafði hún verið sett undir u.þ.b 10 kg grjót og er greinilegt að andlát hennar sé af mannavöldum,“ segir Ágúst sem bendir á að hundurinn hafi haft höfuðáverka sem að sögn dýralækna eru að öllum líkindum ekki eftir bíl. Ágúst segir að þrátt fyrir að vera sorgmæddur og reiður, sé það léttir að Tinna hafi fundist. Hann tekur fram að hann sé þakklátur fyrir allan þann stuðning, samhug og aðstoð sem eigendum hundsins hafi verið veitt á meðan leit stóð. „Frá okkar dýpstu hjartarótum þá þökkum við ykkur fyrir aðstoðina og hugulsemina sem þið hafið sýnt okkur í þessari leit. Ég get aldrei launað ykkur öllum þennan tíma með öðru en orðum sem eru: Þið eruð frábær!“Vísir/Skjáskot
Tengdar fréttir Ásakanir ganga á víxl vegna hvarfs Tinnu en eigendurnir halda í vonina Málinu líkt við Lúkasarmálið. 11. janúar 2017 14:00 Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá Reykjanesi að Hafnarfirði að hundinum Tinnu. Eigendur hennar lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Mikill fjöldi fólks hefur leitað. Eigendurnir hafa ekki mætt til vinnu frá því Tinna týndist. 6. janúar 2017 07:00 Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Hátt í fjörutíu manns leita nú að hundinum Tinnu sem týndist á Suðurnesjum fyrir fjórum dögum síðan. 2. janúar 2017 14:49 Miðill kveðst hafa séð Tinnu nálægt álverinu Tíkin Tinna hefur nú verið týnd í meira en viku og hefur formlegri leit verið hætt. Andrea Björnsdóttir, eigandi Tinnu, leitaði allan gærdag eftir vísbendingu úr óvæntri átt. Kona með ofnæmi fyrir hundum meðal þeirra sem hafa leitað. 11. janúar 2017 07:00 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Sjá meira
Ásakanir ganga á víxl vegna hvarfs Tinnu en eigendurnir halda í vonina Málinu líkt við Lúkasarmálið. 11. janúar 2017 14:00
Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá Reykjanesi að Hafnarfirði að hundinum Tinnu. Eigendur hennar lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Mikill fjöldi fólks hefur leitað. Eigendurnir hafa ekki mætt til vinnu frá því Tinna týndist. 6. janúar 2017 07:00
Hundurinn Tinna týnd í fjóra daga: Eigandinn býður 200 þúsund krónur í fundarlaun Hátt í fjörutíu manns leita nú að hundinum Tinnu sem týndist á Suðurnesjum fyrir fjórum dögum síðan. 2. janúar 2017 14:49
Miðill kveðst hafa séð Tinnu nálægt álverinu Tíkin Tinna hefur nú verið týnd í meira en viku og hefur formlegri leit verið hætt. Andrea Björnsdóttir, eigandi Tinnu, leitaði allan gærdag eftir vísbendingu úr óvæntri átt. Kona með ofnæmi fyrir hundum meðal þeirra sem hafa leitað. 11. janúar 2017 07:00