Hetjur sem óttast ekkert
Sigur strákanna í gærkvöldi var algjörlega magnaður. Enn eina ferðina gekk Tyrkjum ekkert að brjóta niður fastmótað og vel útfært leikskipulag Íslands og fljótlega fór það að fara í taugarnar á þeim. Í síðustu fjórum leikjum gegn Tyrklandi er íslenska liðið aðeins búið að fá á sig eitt mark og það var draumamark, beint úr aukaspyrnu.
Ísland hélt sig við grunngildi sín og skipulag. Undirbúningurinn fyrir leikinn var augljóslega fullkominn bæði er varðar fótboltafræðin og eins varðandi undirbúninginn fyrir stemninguna sem var búist við að myndi ríkja á leiknum. Hún var svakaleg til að byrja með; ærandi læti og baul svo enginn heyrði mannsins mál.
Það er ekki nema mánuður síðan króatíska landsliðið mætti til Tyrklands og bognaði undan þessu andrúmslofti. Það gerðu okkar strákar ekki. Hetjur nefnilega óttast ekkert og þessir drengir eru ekkert annað en hetjur. Alltaf þegar maður heldur að þeir séu búnir að toppa sig draga þeir svona frammistöðu fram úr erminni og kemur íslensku þjóðinni, sem er nú þegar búin að fá að fagna með þeim, á óvart.
Hver einn og einasti maður vissi hvað hann átti að gera inn á vellinum og gerði það vel. Eins og alltaf er þó ein stjarna sem skín aðeins skærar og að þessu sinni var það Jón Daði Böðvarsson sem átti sviðið. Þó honum gangi illa að skora fyrir landsliðið er hann þyngdar sinnar virði í gulli með vinnusemi sinni og baráttu. En í gær lagði hann upp fyrstu tvö mörkin og var óskabarn þjóðarinnar í nokkrar klukkustundir.
Það er skammur tími fyrir Heimi til að vinna með strákana fyrir leikinn á mánudaginn en við vitum að þeir eru klárir. Kósóvó er klisja; sýnd veiði en ekki gefin. Við erum samt með betra lið og ef menn spila svona eins og í Tyrklandi verður mánudagurinn 9. október rauður dagur á dagatölum framtíðarinnar. HM-dagurinn.
Tengdar fréttir

Kári: Hefðum tekið þessa stöðu fyrir mót
Kári Árnason, miðvörður Íslands, átti frábæran leik í kvöld sem og allir leikmenn íslensa liðsins í 3-0 sigri á Tyrkjum. Kári segir að liðið hefði tekið þessa stöðu fyrir mót; að vera sigri frá sæti á HM.

Jón Daði: Frábært að hjálpa okkur að taka skref í átt að HM
Jón Daði Böðvarsson, maður leiksins gegn Tyrkjum í kvöld, var eðlilega ánægður en hélt sig á jörðinni í samtali við Vísi í leikslok. Selfyssingurinn var einnig ánægður með sinn leik.

Pyry Soiri kominn í guðatölu á Íslandi
Finnski miðjumaðurinn er nýjasta þjóðhetja Íslendinga.

Aron Einar: Alveg sama þó hann skori ekki, hann er töffari
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, segir að leikplan Íslands hafi gengið fullkomnlega upp í Tyrklandi í kvöld, en Ísland vann þar frækinn 3-0 sigur.

Twitter í hálfleik: Jón Daði myndi standa af sér fólskulega líkamsárás
Twitter er gjörsamlega á hliðinni eftir frábæran fyrri hálfleik strákanna okkar gegn Tyrkjum í Tyrklandi, en leikurinn er liður í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi.

Undankeppni HM: Finnar gerðu Íslendingum mikinn greiða
Níu leikir voru í kvöld í undankeppni HM 2018 sem fer fram í Rússlandi. Wales og Írland unnu bæði mikilvæga sigra og Spánn átti í engum vandræðum með Albaníu.

Heimir: Risa karaktersigur
Heimir Hallgrímsson var að vonum hæstánægður eftir 0-3 sigur Íslands á Tyrklandi í Eskisehir í undankeppni HM í kvöld.

Jói Berg: Strákarnir orðnir þreyttir á að gera grín að markaleysinu
"Þetta var örugglega einn sá stærsti sigur í sögu íslensks fótbolta“

Einkunnir eftir sigurinn í Tyrklandi: Jón Daði maður leiksins
Ísland vann stórbrotinn sigur á Tyrklandi í kvöld, en leiknum lauk með 3-0 sigri Íslands. Jóhann Berg Guðmundsson, Birkir Bjarnason og Kári Árnason skoruðu mörk Íslands og liðið hefur því tryggt sér að minnsta kosti umspilssæti.


Umfjöllun: Tyrkland - Ísland 0-3 | Frábær frammistaða í Eskisehir og Ísland einum sigri frá sæti á HM
Stund sannleikans er runnin upp í Tyrklandi þar sem strákarnir okkar sækja Tyrki heim á einn erfiðasta útivöll heims. Okkar menn þurfa helst að fá eitthvað úr leiknum.

Hannes: Æðisleg tilfinning þegar þögn sló á Tyrki
"Alveg klárlega einn af stærstu sigrum landsliðsins.“

Kjartan Henry kallaður inn í landsliðið
Kjartan Henry Finnbogason kemur inn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta fyrir leikinn á móti Kósóvó á mánudagskvöldið.