Fótbolti

Kári: Hefðum tekið þessa stöðu fyrir mót

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kári Árnason, miðvörður Íslands, átti frábæran leik í kvöld sem og allir leikmenn íslensa liðsins í 3-0 sigri á Tyrkjum. Kári segir að liðið hefði tekið þessa stöðu fyrir mót; að vera sigri frá sæti á HM.

„Þetta voru mikil læti í byrjun og þeir náðu okkur aftarlega á völlinn. Það hentaði okkur ágætlega og ég man ekki eftir að þeir hafi átt skot á markið, ekki fyrr en í seinni hálfleik,“ sagði Kári.

„Þetta spilaðist upp í hendurnar á okkur. Við vorum með þetta í fanginu allan tímann,” sagði miðvörðurinn öflugi en Tyrkirnir hafa einungis skorað eitt mark á 360 mínútum gegn Kára og félögum í vörninni. Takið á þeim er gott.

„Ég held að þeir verði dálítið frústeraðir þegar það gengur lítið fram á við hjá þeim. Við lokuðum öllum svæðunum vel; skipulagið okkar sem er gott hentar þeim illa og þeir eru með einstaklinga sem geta gert eitthvað.“

„Við erum með prinsipp sem við fylgjum. Við höngum í mönnum þangað til að “the job is done“ og ég meina; 8-1 í fjórum leikjum gegn Tyrklandi.“

Kári og Ragnar Sigurðsson náðu enn og aftur frábærlega saman gegn stórum og stæðilegum framherjum Tyrkja.

„Þetta hentar okkur ágætlega að spila gegn stórum og sterkum strákum. Þeir vinna sinn skerf af boltum og það er ekki létt að eiga við þá. Þeir eru grófir og maður þarf að passa að brjóta ekki á þeim eins og í síðasta leik þegar þeir skoruðu beint úr aukaspyrnu,“ sagði Kári.

„Þeir eru með stórhættulega spyrnumenn og mér fannst það mjög jákvætt að þeir fengu lítið af aukaspyrnum fyrir utan teiginn sem hefði verið þeirra helsta ógn.“

Hvernig hljómar það að vera 90 mínútum og sigri frá sæti á HM í Rússlandi 2018?

„Það hljómar bara ágætlega. Við höfðum trú á þessu fyrir, en við vissum að þetta myndi ráðast á síðasta leik. Við hefðum tekið þessa stöðu fyrir mót,“ sagði Kári glaður í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×