Fyrsta skrefið reyndist gæfuspor 9. desember 2017 10:00 Torfi (t.v.) fann fyrst fyrir létti en síðan kom reiðin. Hjálmar (t.h.) hefur unnið við ráðgjöf hjá Stígamótum í 3 ár. ERNIR
Ég hélt að Stígamót væru bara fyrir konur. Þegar konan mín komst að því að Stígamót væru með viðtöl og sjálfshjálparhópa fyrir konur og karla sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi ákvað ég að koma hingað,“ segir Torfi og bætir við að það hafi ekki verið auðveld skref. „Mér fannst erfiðast að byrja að tala um kynferðislegt ofbeldi sem ég varð fyrir sem barn, enda var það eitthvað sem ég hafði bælt niður í þrjátíu ár. Mér fannst ekki óþægilegt að vera karl að koma til Stígamóta heldur gott að geta fengið hjálp frá sérfróðu fólki sem vissi alveg um hvað ég var að tala.“ Torfi segist hafa upplifað mikla skömm og fannst hann eiga hluta af sökinni sjálfur. „Ég var með ranghugmyndir sem ég hafði ákveðið að væru réttar, án þess að ræða það við nokkra manneskju. Þegar ég opnaði mig og talaði við ráðgjafa gat ég unnið úr þessum ranghugmyndum og þessum þunga sem hvíldi á mér,“ segir hann alvarlegur í bragði. „Fyrst fann ég fyrir rosalegum létti, svo kom reiðin og þungi og fleiri tilfinningar sem tók lengri tíma að vinna úr. Núna er ég á allt öðrum stað en þegar ég kom fyrst til Stígamóta. Ég var svo dofinn. Í mörg ár notaði ég mat til að borða yfir allar tilfinningar. Þegar ég byrjaði að vinna í mínum málum náði ég hægt og rólega að geta talað um ofbeldið og tilfinningar án þess að þurfa að borða yfir það.“ Hvernig finnst þér viðhorf samfélagsins vera til karlbrotaþola? „Ég var viss um að það væri mjög neikvætt og átti von á að þegar ég færi að segja frá myndi ég fá neikvæð viðbrögð. En ég komst að því að það er ekki svo. Ég fékk mjög jákvæð viðbrögð frá fjölskyldunni, vinum og vinnufélögum. Fólk brást allt öðruvísi við en ég átti von á. Ég var búinn að berja mig svo mikið niður, og af því að ég hugsaði svona, hélt ég að allir aðrir hugsuðu á þann hátt.“ Hefurðu eitthvað að segja við aðra karlkyns brotaþola þarna úti sem hafa kannski ekki leitað sér hjálpar? „Nú get ég bara talað út frá sjálfum mér en þegar ég kom til Stígamóta og fór að vinna í mínum málum fóru hlutirnir að gerast og líf mitt breyttist til betri vegar. Ég hafði alltaf bælt niður allar tilfinningar og það er erfitt að búa með og umgangast þannig manneskju. Ég skil ekki hvernig konan mín þraukaði! Ég mæli með að menn komi og gefi Stígamótum tækifæri, komi í 10-12 tíma. Eftir tvo tíma vissi ég að þetta væri eitthvað sem ég yrði að gera. Það var erfitt en vel þess virði að vinna úr þessari tilfinningaflækju sem hafði plagað mig í mörg ár.“Þessi grein birtist fyrst í sérblaði um Stígamót sem fylgdi Fréttablaðinu.
Mest lesið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Lífið Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Lífið Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Bakið er hætt að hefna sín Lífið samstarf Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Sjá meira