Stuðningur Íslendinga við trúarbyggingar Þjóðkirkjunnar dvínað frá 2013 nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 18. október 2016 18:37 Dómkirkjan í Reykjavík
Rúmlega 62 prósent þjóðarinnar eru fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu nýrrar könnunar MMR á viðhorfi Íslendinga til byggingar trúarlegra bygginga hér á landi. Þátttakendur könnunarinnar tóku afstöðu til spurningarinnar Hversu andvíg(ur) ertu að eftirfarandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi? Fjöldi svarenda var 985. Stuðningur við Þjóðkirkjuna hefur farið þverrandi frá því að reglulegar mælingar hófust árið 2013. Þá naut hún stuðnings rúmlega 67 prósenta landsmanna. Munurinn á þessu ári og því síðasta er þó óverulegur. Stuðningur við trúarbyggingar múslima minnkar Niðurstöðurnar hafa lítið breyst frá síðustu mælingum sem gerðar voru fyrir ári síðan. Helstu breytingarnar eru að viðhorf fólks í garð byggingar á trúarhúsi ásatrúarmanna er ívið jákvæðari, eða tæpum fjórum prósentum. Þá hefur andstaða gagnvart byggingu trúarhúss múslima aukist örlítið. Í fyrra voru 37,6 prósent landsmanna andvíg en nú er hlutfallið 42,1 prósent. Önnur trúfélög njóta að jafnaði minni stuðnings en Þjóðkirkjan. Af aðspurðum sögðust rúm 54 prósent vera fylgjandi því að Ásatrúarfélagið reisi hér trúarbyggingar, 41,4 prósent voru fylgjandi því að Búddistafélagið fengi að byggja hér trúarbyggingar, 35,5 prósent voru fylgjandi því að Rússneska rétttrúnaðarkirkjan reisti trúarbyggingar en aðeins 35,5 prósent styðja byggingu trúarhúsa Félags múslima á Íslandi.Innan við helmingur ungs fólks styður trúarbyggingar Þjóðkirkjunnar Viðhorf fólks í garð trúarbygginga á Íslandi eru ólík eftir aldri og stjórnmálaskoðunum. Athygli vekur að innan við helmingur ungs fólks á aldrinum 18 til 29 ára styður bygginga á trúarhúsum Þjóðkirkjunnar. Elsti aldursflokkurinn, 68 ára og eldri, var sá hópur sem helst studdi Þjóðkirkjuna, eða 88 prósent. Þess ber jafnframt að geta að samkvæmt könnun sem MMR gerði árið 2013 að 70 prósent þjóðarinnar eru andvíg ókeypis lóðaúthlutunum til trúfélaga.Stuðningur við byggingar Ásatrúarfélagsins eykst lítillega frá því í fyrra.MYND/MMRStuðningsmenn Pírata hlynntari byggingum Ásatrúarfélagsins en ÞjóðkirkjunnarÍ könnuninni var einnig skoðað fylgni á milli viðhorfs til trúarbygginga og stjórnmálaskoðana. Þeir sem helst gerðu greinarmun á Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum eru Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn. Tæp 65 prósenta stuðningsmanna Framsóknarflokksins sögðust til að mynda styðja byggingu á trúarhúsum Þjóðkirkjunnar en aðeins 9 prósent þeirra sögðust styðja trúarbyggingar múslima hér á landi. Stuðningsmenn Pírata sýna Þjóðkirkjunni minnstan stuðning eða aðeins um 45 prósent. Hins vegar styðja 56,8 prósent þeirra byggingu trúarhúsa ÁstatrúarfélagsinsKirkjur Þjóðkirkjunnar í yfirgnæfandi meirihluta Á Íslandi eru 376 guðshús sem tilheyra Þjóðkirkjunni. Eitt búddamusteri er á Íslandi en það er í Kópavogi. Ásatrúarfélagið, Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima á Íslandi hafa öll fengið lóðarúthlutun til byggingar nýrra trúarhúsa. Ásatrúarfélagið hugðist reisa hof í Öskjuhlíðinni en ekki er útlit fyrir að það muni rísa vegna fjárhagsörðugleika félagsins. Bygging á kirkju Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar er þegar hafin en hún mun standa á lóð við Mýrargötu nálægt Reykjavíkurhöfn. Félag múslima fékk lóð til umráða í Sogamýri árið 2013. Félagið efndi til hönnunarkeppni í fyrra en verðlaunatillagan gerir ráð fyrir húsið muni verða 670 fermetrar í heild sinni.
Tengdar fréttir Rúmlega fjörutíu prósent andvíg byggingu mosku Meirihluti er hlynntur því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en MMR kannaði á dögunum afstöðu Íslendinga til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi. 8. október 2014 14:12 Þriðjungur Íslendinga mjög andvígur mosku Skiptar skoðanir eru á því meðal landsmanna hvort byggja eigi mosku í Reykjavík. Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru 41,8 prósent andvígir byggingu mosku en 36,6 prósent eru hlynntir því að moskan rísi. 25. september 2010 06:00 Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Innlent Fleiri fréttir Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðanir“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Sjá meira
Rúmlega fjörutíu prósent andvíg byggingu mosku Meirihluti er hlynntur því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en MMR kannaði á dögunum afstöðu Íslendinga til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi. 8. október 2014 14:12
Þriðjungur Íslendinga mjög andvígur mosku Skiptar skoðanir eru á því meðal landsmanna hvort byggja eigi mosku í Reykjavík. Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins eru 41,8 prósent andvígir byggingu mosku en 36,6 prósent eru hlynntir því að moskan rísi. 25. september 2010 06:00