Forseti Brasilíu sakaður um að hafa tekið við háum mútum Anton Egilsson skrifar 12. desember 2016 22:00 Michel Temer, forseti Brasilíu.er borinn þungum sökum. Vísir/GETTY
Michel Temer, forseti Brasilíu, er borinn þungum sökum en hann er sagður hafa tekið við mútum og notað þær til að fjármagna kosningabaráttu hans og forvera hans í starfi, Dilma Rousseff. Temer hefur neitað ásökununum en upphæðin sem um ræðir er talin nema 2,9 milljónum dollara eða tæpum 325 milljónum íslenskra króna. Dómari við æðsta dómstól Brasilíu tjáði The Guardian að ásakanirnar gætu orðið til þess að rannsókn muni fara fram á hvort að múturnar hafi verið notaðar í að kosta forsetaframboð Dilmu Rousseff en Temer var varaforsetaefni hennar. Verði það staðreynt gæti það leitt til embættismissis hans.Mjög óvinsæll í heimalandinuÞessar fregnir koma eflaust ekki til með að bæta stöðu hins 75 ára Temer en hann er mjög óvinsæll í heimalandinu. Í skoðunakönnun sem birtist í gær kom fram að 63 prósent þjóðarinnar vilja að Temer segi af sér og að kosið verði um nýjan forseta. Temer tók við stjórnartaumunum í Brasilíu í maí á þessu ári eftir að Dilma Rousseff var vikið tímabundið úr embætti. Var hún borin þeim sökum að hafa hagrætt fjárlögum landsins til að hylma yfir vaxandi tekjuhalla ríkisins. Öldungadeild brasilíska þingsins kaus svo um embættisákæru hennar í ágúst síðastliðnum og var henni þá endanlega vikið úr starfi.
Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Sjá meira