Mannréttindadómstóll Evrópu tekur mál lögmanns sem skrópaði til skoðunar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 7. október 2016 15:27 Stefán Karl Kristjánsson hafnar því að hafa skrópað í dóminn. Hann segist hafa boðað forföll og að þá hafi honum ekki verið tilkynnt um tímasetningu fyrirtöku. vísir
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur óskað eftir gögnum vegna máls Stefáns Karls Kristjánssonar hæstaréttarlögmanns sem gerð var réttarfarssekt í Hæstarétti í fyrra fyrir að hafa misboðið virðingu Héraðsdóms Reykjavíkur. Stefán Karl var fjarverandi í sakamáli í fjórgang og í kjölfarið leystur frá störfum. Jón Bjarni Kristjánsson, lögmaður Stefáns Karls, fagnar því að dómstóllinn hafi ákveðið að taka málið til greina. Afar sjaldgæft sé að hann taki mál til skoðunar, enda skipti þau mál sem send séu til hans daglega þúsundum. „Við vorum mjög óánægðir með þessa niðurstöðu og kærðum þetta til mannréttindadómstóls Evrópu. Dómstóllinn hefur nú svarað okkur og óskað eftir gögnum málsins og það kann að vera að hann muni taka til efnislegrar meðferðar þessa kæru Stefáns til dómsins,“ segir Jón Bjarni í samtali við Vísi. Stefán Karl sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins á sínum tíma þar sem hann hafnaði því að hafa brotið gegn skjólstæðingi sínum eða sýnt dómnum vanvirðu. Honum hafi ekki verið tilkynnt um dagsetningar á fyrirtökum og að þá hafi hann boðað forföll, nema í eitt skipti. Jafnframt fullyrti hann í yfirlýsingunni að þingbók hafi verið breytt eftir á.Jón Bjarni Kristjánsson, lögmaður Stefáns Karls.vísirJón Bjarni tekur fram að illa hafi verið staðið að málum. Til að mynda hafi Stefán Karl ekki fengið andmælarétt. Hann vísar til sératkvæðis sem Karl Axelsson hæstaréttardómari lagði fram þess efnis. Þar sagðist Karl sammála því að Stefán Karl hefði brotið gegn starfsskyldum sínum en að hins vegar hefði átt að kalla til dómþings strax í framhaldinu, kynna Stefáni sakarefnið og gefa honum kost á að koma að andmælum við fyrirhugaða ákvörðun um réttarfarssekt. „Með því að gera honum sekt með þessum hætti var gengið fram hjá öllum málsmeðferðarreglum sem um refsingar eiga að gilda. Hann eigi að fá kost á að taka til varna og svara þeim sjónarmiðum sem dómari hefur uppi,“ segir Jón Bjarni. Réttarfarssektin hljóðaði upp á 300 þúsund krónur í Héraðsdómi Reykjaness, en Hæstiréttur lækkaði sektina niður í 50 þúsund krónur. Jón Bjarni segir að um sé að ræða algjört grundvallar atriði. „Það er ástæða fyrir því að dómstóllinn er búinn að kalla eftir gögnum. Það er mjög óalgengt að mannréttindadómstóll Evrópu taki mál til greina og þess vegna geri ég mínum skjólstæðingum alltaf ljóst að á mjög brattan sé að sækja þegar þeir óska eftir því að málið fari lengra,“ segir hann.
Tengdar fréttir Lögmaður sektaður fyrir ítrekað skróp Stefán Karl Kristjánsson var í dag sektaður um 300 þúsund krónur fyrir að mæta ekki við aðalmeðferð hjá skjólstæðingi sínum. 11. febrúar 2014 17:01 Telur afgreiðslu dómara tilhæfulausa Stefán Karl Kristjánsson lögmaður hafnar því að hafa brotið gegn skjólstæðingi sínum eða sýnt dómi vanvirðu. 12. febrúar 2014 17:30 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Lögmaður sektaður fyrir ítrekað skróp Stefán Karl Kristjánsson var í dag sektaður um 300 þúsund krónur fyrir að mæta ekki við aðalmeðferð hjá skjólstæðingi sínum. 11. febrúar 2014 17:01
Telur afgreiðslu dómara tilhæfulausa Stefán Karl Kristjánsson lögmaður hafnar því að hafa brotið gegn skjólstæðingi sínum eða sýnt dómi vanvirðu. 12. febrúar 2014 17:30