Sakar lögreglustjóra um að fara með rangt mál Jakob Bjarnar skrifar 3. febrúar 2016 16:17 Sunna telur tölvupóst Sigríðar Bjarkar engan veginn fá staðist skoðun, sem þýðir þá að Sunna telur lögreglustjóra fara með rangt mál. „
Sigríði Björk var því fullljóst að þarna væri hún sjálf að tala, enda textinn í fyrstu persónu og um hennar feril,“ segir Sunna Valgerðardóttir blaðamaður og fyrrum fréttamaður á RÚV. Sunna hefur skrifað færslu á Facebooksíðu sína þar sem hún fer yfir umdeilt mál sem Vísir hefur fjallað um í dag og í gær, eins og það horfir við sér. Málið fjallar um ágreining milli Eggerts Skúlasonar og Sunnu, en Eggert hefur fordæmt viðtal sem Sunna tók við lögreglustjóra og birtist í fréttatíma RÚV 22. nóvember 2014. Nýjasta í málinu var að Eggert Skúlason birti tölvupóst frá Sigríði Björk Guðjónsdóttur til sín, þar sem lögreglustjórinn segist ekki hafa vitað að verið væri að hljóðrita „viðtal“ við sig af Sunnu.Vísir greindi frá hér. Samkvæmt Sunnu fær þetta engan veginn staðist, það að lögreglustjóra hafi ekki verið kunnugt um að verið væri að taka viðtalið upp, eins og sjá má á færslu hennar sem fer hér á eftir. Með öðrum orðum segir blaðamaður lögreglustjóra fara með rangt mál. Samkvæmt heimildum Vísis verður fundað sérstaklega um þetta mál meðal yfirmanna á fréttastofu RÚV, en beðið er þess að Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri komi til landsins en hún er nú stödd erlendis.Facebook-færsla Sunnu „Að morgni 22. nóvember 2014 tók ég viðtal við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, fyrir hádegisfréttir RÚV í útvarpi. Viðtalið snerist um aðkomu Sigríðar Bjarkar að lekamálinu og Gísla Frey Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmann Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, sem hafði sagt sig frá embætti deginum áður. Ég hringdi í Sigríði Björk úr gemsanum mínum um morguninn til að biðja hana um viðtal. Hún varð við því. Ég skellti á og færði mig inn í upptökuver þar sem ég hringdi úr upptökusíma stúdíósins aftur í hana. Hófst þá viðtalið, sem stóð í rúmar 20 mínútur. Ég er búin að hlusta á upptöku af viðtalinu. Í lok viðtalsins tilkynnti ég Sigríði Björk að ég mundi nú hlusta á viðtalið, velja úr því það sem mér fannst svara spurningum mínum best og heyra svo aftur í henni fyrir hádegisfréttir til að láta hana vita hvað ég mundi velja úr, enda hafði Sigríður Björk sett það sem skilyrði fyrir viðtalinu í símtalinu við mig áður en ég fór í stúdíóið. Hún meðtók það og sagði að það væri ágætt að sín rödd heyrðist líka í þessu máli. Þegar ég var búin að klippa viðtalið við lögreglustjóra niður í rúmar fjórar mínútur, og skrifa það upp, hringdi ég aftur í hana og las handritið fyrir hana. Hún var sátt með það og tók fram að niðurlagið í viðtalinu hafi verið sérstaklega gott, þar sem hún sagði, og ég las upp fyrir hana: „Það er bara verið að stilla þessu svona upp eftir á. Ég er með átján ára flekklausan feril. Þið eruð að draga mig niður sko. Ég hef ekkert gert. Ég sendi umbeðin gögn til nýs ráðherra eða ráðuneytis sem er minn yfirmaður þannig að það er nú bara staðan í málinu.“ Sigríði Björk var því fullljóst að þarna væri hún sjálf að tala, enda textinn í fyrstu persónu og um hennar feril. Eins og Eggert Skúlason, ritstjóri DV, sýnir fram á í tölvupósti frá Sigríði Björk sem hann birtir á Facebook síðu sinni, heldur hún því fram að hún hafi ekki vitað að hún væri á upptöku og að ég hafi spilað viðtalið frá upphafi til enda án hennar leyfis. Hádegisfréttatími RÚV hefði ekki rúmað allt viðtalið, sem var, eins og áður segir, rúmar 20 mínútur. Hún sendi mér sama tölvupóst þegar ég bað hana um svör í morgun. Svo má líka benda á að lögreglustjórinn hefur nú haft rúma 14 mánuði til að koma þessum athugasemdum sínum á framfæri. Það gerði hún ekki eftir hádegisfréttatímann 22. nóvember 2014 og ég hef engar efnislegar athugasemdir fengið vegna þessa viðtals fyrr en í leiðara ritstjórans í gær.“Að morgni 22. nóvember 2014 tók ég viðtal við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, fyrir há...Posted by Sunna Valgerðardóttir on 3. febrúar 2016
Tengdar fréttir Lögreglustjóri neitar að tjá sig um ágreining Eggerts og Sunnu Sigríður Björk vill ekki blanda sér í deilur fjölmiðlamanna og er ófáanleg til að upplýsa málið. 3. febrúar 2016 10:15 RÚVarar sauma að Eggerti Skúlasyni Ritstjóri DV er í kröppum dansi á Fb-síðu Sunnu Valgerðardóttur. 2. febrúar 2016 16:10 Eggert birtir tölvupóst frá lögreglustjóra Sigríður Björk taldi víst að fréttamaður RÚV væri ekki að hljóðrita viðtal við sig, sem birtist í nóvember 2014. 3. febrúar 2016 15:04 Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Sjá meira
Lögreglustjóri neitar að tjá sig um ágreining Eggerts og Sunnu Sigríður Björk vill ekki blanda sér í deilur fjölmiðlamanna og er ófáanleg til að upplýsa málið. 3. febrúar 2016 10:15
RÚVarar sauma að Eggerti Skúlasyni Ritstjóri DV er í kröppum dansi á Fb-síðu Sunnu Valgerðardóttur. 2. febrúar 2016 16:10
Eggert birtir tölvupóst frá lögreglustjóra Sigríður Björk taldi víst að fréttamaður RÚV væri ekki að hljóðrita viðtal við sig, sem birtist í nóvember 2014. 3. febrúar 2016 15:04