Innlent

Leyft að hefja byggingu lúxushótels á Hörpureit

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Opna á 250 herbergja hótel á Austurbakka árið 2018.
Opna á 250 herbergja hótel á Austurbakka árið 2018. Vísir/Ernir
Félagið Reykjavik Development hefur fengið takmarkað byggingarleyfi til að hefja byggingu lúxushótels við hlið Hörpunnar.

Samkvæmt umsögn skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar um umsókn um hótelbygginguna liggja fyrir teikningar af mannvirkinu hjá embættinu. Afrit af þeim fæst hins vegar ekki afhent.

Í svari við beiðni Fréttablaðsins segir að ekki sé hægt að senda „vinnugögn sem geta hæglega breyst í meðferð nefnda og ráða“ en að þegar byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfið sé unnt að senda endanlega uppdrætti.

Hönnunarstjóri hótelbyggingarinnar hjá T.Ark Arkitektum hefur ekki svarað ítrekuðum skilaboðum frá Fréttablaðinu þar sem óskað er eftir teikningum sem sýna útlit hótelsins. Fram hefur komið að alþjóðlega hótelkeðjan Marriott stendur að verkefninu.

Fyrrnefnt takmarkað byggingarleyfi sem byggingarfulltrúi samþykkti að veita í gær lýtur aðeins að jarðvinnu, undirstöðum og botnplötu og kjallaraveggjum ásamt innsteyptum lögnum í vatnsheldan hjúp bílakjallara, að því er kemur fram í fundargerð embættisins.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×