Innlent

Breytingar á merkingum á Keflavíkurflugvelli

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík vísir/valli
Breytingar verða gerðar á merkingum brottfararhliða á Keflavíkurflugvelli í kvöld og nýjar merkingar munu því gilda um morgunflug í fyrramálið. Hlið verða því framvegis aðgreind með lit og bókstaf eftir því í hvaða hluta flugstöðvarinnar þau eru og hvort þau eru fyrir flug til áfangastaða innan eða utan Schengen-svæðisins.

Í tilkynningu frá Isavia segir að nýja leiðbeiningakerfið sé hugsað til framtíðar og muni falla vel að framtíðaruppbyggingu samkvæmt þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar.

Þá segir jafnframt að unnið hafi verið að þessum breytingum undanfarið með það að markmiði að auðvelda farþegum að komast leiðar sinnar innan flugstöðvarinnar.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig númer núverandi hliða munu breytast.

Hliðin sem hafa bókstafina A og C eru fyrir áfangastaði innan Schengen svæðisins en þau sem hafa bókstafinn D eru fyrir áfangastaði utan Schengen. Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar gerir ráð fyrir nýjum brottfararhliðum til austurs og vesturs frá norðurbyggingu. Þau nýju hlið munu í framtíðinni vera merkt A og B og hliðin í suðurhluta flugstöðvarinnar bera bókstafina C og D, segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×