Punyed á skotskónum með El Salvador Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2016 14:00 Pablo Punyed lék sinn 17. landsleik fyrir El Salvador í nótt. vísir/getty
ÍBV átti tvo fulltrúa í byrjunarliði El Salvador sem gerði 2-2 jafntefli við Hondúras á heimavelli í undankeppni HM 2018 í nótt. Derby Carillo og Pablo Punyed voru báðir í byrjunarlið El Salvador en þeir gengu til liðs við ÍBV í vetur. Sá síðarnefndi hefur einnig spilað með Fjölni, Fylki og Stjörnunni hér á landi. Carillo stóð allan tímann í markinu í nótt og Punyed lék fyrstu 78 mínúturnar á miðjunni og skoraði fyrra mark El Salvador. Alberto Elis kom Hondúras yfir á 19. mínútu en Punyed jafnaði metin með góðu skoti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik. Þetta var annað landsliðsmark Punyeds en hann var einnig á skotskónum í 1-3 tapi fyrir Haítí í vináttulandsleik í fyrra. Anthony Lozano kom Hondúras aftur yfir á 59. mínútu en Nelson Bonilla tryggði Salvadorum stig þegar hann jafnaði metin mínútu fyrir leikslok. Punyed, Carillo og félagar eru í 3. sæti A-riðils undankeppninnar með tvö stig eftir þrjá leiki. Tvö efstu liðin fara áfram í úrslitariðilinn.
Fótbolti Tengdar fréttir Klinsmann í klípu eftir tap fyrir Gvatemala Það heldur áfram að hitna undir Jürgen Klinsmann, þjálfara bandaríska landsliðsins í fótbolta, eftir að hans menn töpuðu óvænt fyrir Gvatemala, 2-0, á útivelli í undankeppni HM 2018 í nótt. 26. mars 2016 12:00 Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sjá meira
Klinsmann í klípu eftir tap fyrir Gvatemala Það heldur áfram að hitna undir Jürgen Klinsmann, þjálfara bandaríska landsliðsins í fótbolta, eftir að hans menn töpuðu óvænt fyrir Gvatemala, 2-0, á útivelli í undankeppni HM 2018 í nótt. 26. mars 2016 12:00