Þörfin aldrei brýnni Birta Björnsdóttir skrifar 14. mars 2016 19:30
Í mars árið 2011 brutust út óeirðir í Sýrlandi eftir að vopnuð lögregla reyndi að brjóta á bak aftur mótmæli gegn harðræði yfirvalda á nokkrum ungmennum sem ásakaðir voru fyrir að krassa áróður á veggi skóla. Nú fimm árum síðar logar ófriðarbálið enn með afskiptum alþjóðasamfélagsins og uppgangi samtakanna sem kenna sig við íslamska ríkið. Ekki þarf að fjölyrða um áhrif átakanna á íbúa landsins og börn í Sýrlandi eru þau sem öðrum fremur þjást vegna stríðsátakanna. Í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem kynnt var fyrr í dag sést svart á hvítu hvað ástandið er alvarlegt. „Þetta er ansi dapurleg lesning en skýrslan er yfirlit yfir stöðu barna eftir fimm ára stríð í Sýrlandi,“ segir Héðinn Halldórsson, upplýsingafulltrúi UNICEF í Líbanon.Héðinn Halldórsson, upplýsingafulltrúi Unicef í Líbanon.„Það sem við getum í fljótu bragði séð er að öll þróun í landinu hefur tekið risastórt stökk aftur í tímann, um eina fjóra áratugi. Við metum stöðuna þannig í dag að 80% sýrlenskra barna þurfi aðstoð af einhverju tagi.“ Aðstoðin er margþætt, líkt og vandi sýrlenskra barna. Á meðan mörg þurfa aðstoð í formi matar, fatnaðar og húsaskjóls þarf að vernda önnur frá nauðungarhjónaböndum, vinnuþrælkun og hermennsku. Þá hafa starfsmenn UNICEF lagt hvað mesta áherslu á að tryggja börnum menntun en fyrir því eru tvær ástæður. „Af því að öll börn eiga rétt á menntun. En svo eru þetta líka börnin sem eiga á einhverjum tímapunkti að byggja landið upp þegar stríðinu lýkur. Ef börnin hafa ekki hlotið neina menntun erum við í ansi slæmri stöðu,“ segir Héðinn. Þau börn sem ganga í skóla í Sýrlandi eru langt því frá óhult. Í fyrra létust 150 börn í skólanum eða á leið sinni milli heimilis síns og skólans. Þriðjungur barna í Sýrlandi þekkir ekki annað en stríð og hafa 2,4 milljónir barna lagst á flótta síðan stríðið braust út. „Neyðin hún hefur líklegast aldrei verið meiri og þörfin aldrei brýnni. Það sem Íslendingar geta gert til að sýna að þeim standi ekki á sama er meðal annars að taka þátt í gjörningi sem UNICEF stendur fyrir í Reykjavík á morgun. Eða að senda orðið STOPP með sms-i í númerið 1900 og veita þannig UNICEF fjárstuðning til að halda áfram að hjálpa börnum í Sýrlandi í neyð,“ segir Héðinn.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira