Innlent

Nauðgaði 15 ára stúlku á 17. júní

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nauðgunin varð að loknum hátíðarhöldum í miðbæ Reykjavíkur.
Nauðgunin varð að loknum hátíðarhöldum í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 21 árs karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga stúlku í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu 17. júní fyrir tæpum þremur árum. Maðurinn, Sigurvin Bachmann, var átján ára þegar brotið var framið en stúlkan fimmtán ára.

Brotið var framið að kvöldi 17. júní að lokinni skemmtun í miðbænum. Þangað fór stúlkan ásamt vinkonu sinni með strætisvagni. Hún greindi frá því að maðurinn hefði farið með hana inn á baðherbergi og nauðgað henni. Hún hefði ekki getað brugðist við sökum ölvunar.

Stúlkan hringdi í foreldra sína eftir atburðinn og sótti faðir hennar hana. Hún greindi þó ekki frá nauðguninni fyrr en í viðtali hjá sálfræðingi Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans þremur dögum síðar. Hafði hún verið hjá viðkomandi sálfræðingi í ár fyrir nauðgunina og verið í sjálfsvígshugleiðingum bæði fyrir og eftir.

Breytti framburði í tvígang

Dómurinn mat framburð stúlkunnar trúverðugan en maðurinn breytti framburði sínum í tvígang, frá því í tveimur skýrslutökum hjá lögreglu og svo fyrir dómi. 

„Það er niðurstaða dómsins að hafna framburði ákærða um að brotaþoli hafi viljað hafa við hann samfarir. Þótt framburður hans fyrir dómi sé ekki ótrúverðugur verður við mat á honum að hafa í huga að það er þriðja útgáfa hans af því sem gerðist milli hans og brotaþola nefndan dag.“

Tvö vitni á staðnum gátu litlar upplýsingar gefið en annað var 13 ára og hitt undir áhrifum áfengis. Hvorugt gat þó staðfest að þau hefðu verið að kyssast í sófanum í aðdraganda þess að þau fóru inn á baðherbergi eins og maðurinn hélt fram.

Sigurvin þarf að greiða stúlkunni 1,2 milljónir króna í miskabætur. Hann hefur ekki áður hlotið dóm. Dóminn í heild má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×