Borga net og síma en fá ekki að vita notkunina Sveinn Arnarson skrifar 2. ágúst 2016 07:00 Togari Samherja við festar í Akureyrarhöfn. vísir/sveinn
Sjómenn Samherja eru ósáttir við fyrirkomulag greiðslna sinna til fyrirtækisins vegna fjarskiptakostnaðar þegar þeir eru á hafi úti. Á launaseðlum sjómannanna er settur upp kostnaður við fjarskipti án þess að þeir fái að sjá sundurliðun notkunar sinnar. Fyrirtækið hefur neitað að svara fyrirspurn Fréttablaðsins hvernig þessum málum er háttað. Sjómenn Samherja greiða fyrir þann kostnað sem hlýst af fjarskiptum þeirra meðan þeir eru á hafi úti. Bæði símasamband við fastalandið sem og internettengingu greiða sjómenn sjálfir. Voru menn að greiða upp undir fjörutíu þúsund krónur í einum túr fyrir síma og net. Það sem þeir eru hins vegar ósáttir við er að þeir fá ekki að sjá sundurliðun á notkun sinni. Samherji rukkar fyrir afnotin með því að taka af launum sjómanna við útborgun. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir sambandið hafa farið í herferð í fyrra einmitt vegna fjarskiptakostnaðar sjómanna á hafi úti.Valmundur Valmundsson„Sumstaðar var það þannig að kostnaði við fjarskipti skipsins var bara deilt á áhöfnina og allir greiddu sama verðið óháð því hversu mikið sjómaður nýtti sér þjónustuna. Búið er að taka fyrir svoleiðis og þetta ætti að vera komið í lag á flestum stöðum,“ segir Valmundur. „Við viljum auðvitað og það á að vera þannig að sjómenn eiga að geta séð notkun sína.“ Valmundur segir sum fyrirtæki hafa þann háttinn á að veita sjómönnum sínum þessa þjónustu þeim að kostnaðarlausu. Fréttablaðið sendi Samherja fyrirspurn um hvernig sjómenn greiði fyrir fjarskipti sín meðan þeir eru á hafi úti, hvort þeir geti fengið að sjá útskrift af notkun sinni með launaseðlum sínum og af hvaða fjarskiptafyrirtæki Samherji keypti þjónustu sína. Anna María Kristinsdóttir, starfsmannastjóri Samherja, svaraði fyrir hönd fyrirtækisins á þá leið að þessar upplýsingar væru milli fyrirtækisins og starfsmanna og því myndi Samherji ekki gefa Fréttablaðinu umbeðnar upplýsingar.Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira