Missti putta við störf á frístundaheimili: Borgin og KR sýknuð af kröfum um skaðabótaábyrgð Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2016 20:56 Umrædd girðing var 2,08 metrar á hæð. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Reykjavíkurborg og Knattspyrnufélag Reykjavíkur af kröfu um skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem kona varð fyrir í vinnuslysi á frístundaheimili í vesturbæ Reykjavíkur í maí 2014. Slysið varð þegar konan, sem var starfsmaður á frístundaheimilinu, tók eftir því að drengur hafði misst bolta yfir girðingu og á lokað svæði sem umlukið var veggjum frístundaheimilisins og girðingu. Drengurinn ætlaði upphaflega að sækja boltann sjálfur en starfsmaðurinn bannaði honum það. Fyrst hafi konan athugað hvort hlið girðingarinnar, sem var 2,08 metrar á hæð, væri lokað og var það sagt eingöngu opnanlegt að innan. „Stefnandi hóf að klifra upp girðinguna sem hún kveður hafa verið algengt að starfsmenn gerðu í slíkum tilvikum. Þegar hún hafi verið hálfnuð upp hafi hún ákveðið að hætta við og sleppti takinu. Þegar hún sleppti takinu á girðingunni festist giftingarhringur á baugfingri vinstri handar í einum tein girðingarinnar með þeim afleiðingum að fingurinn rifnaði af,“ segir í dómnum. Þar segir að í ljósi hæðar girðingarinnar og þeirrar reynslu sem stefnandi var búin að afla sér í starfinu, verði ekki ályktað á annan veg en þann að henni hafi mátt vera ljós sú hætta sem stafaði af því að klifra upp á girðingu, sem annars vegar var óheimilt að klifra í samkvæmt umgengnisreglum á íþróttasvæðinu, og sem hins vegar var ætlað að varna því að fólk færi inn á svæðið. Einnig segir að slysið verði ekki rakið til þess að skort hafi á öryggisráðstafanir af hálfu stefnda á svæðinu. „Verður því talið að orsök slyssins í máli þessu megi aðeins rekja til háttsemi og óhappatilviks stefnanda en stefnandi hefur ekki sýnt fram á orsakatengsl á milli meints skorts á að mæta öryggiskröfum eða ófullnægjandi aðbúnaðar, við óhapp hennar. Verður því slysið, [...] aðeins rakið til óaðgæslu af hennar hálfu en ekki til atvika, athafna eða athafnaleysis er varða stefndu,“ segir í dómnum. Málskostnaður var felldur niður en allur gjafsóknarkostnaður stefnanda, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar 1.000.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Sjá meira