Þingmenn allra flokka leggja til Laxnesssetur Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. mars 2016 07:00 Gljúfrasteini, sem áður var heimili fjölskyldu Halldór Laxness, er ætlað lykilhlutverk í nýju Laxnesssetri. Vísir/Vilhelm
Þróunar- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar segir bæinn styðja heilshugar við hugmyndir um uppbyggingu menningarhúss að Gljúfrasteini. Kemur þetta fram í umsögn vegna tillögu á Alþingi um uppbyggingu Laxnessseturs. Ferðamálanefndin segir mikla möguleika í uppbyggingu á Gljúfrasteini, sem var sem kunnugt er heimili Nóbelskáldsins Halldórs Laxness og fjölskyldu hans en er nú safn í eigu ríkisins.Halldór Laxness á sjötíu ára afmæli sínu. Fréttablaðið/GVA„Ævistarf Halldórs Laxness er dýrmætur þjóðararfur og ber að standa vörð um hann,“ segir nefndin sem kveður Mosfellsbæ minnast skáldsins með margvíslegum hætti á hverju ári. Að þingsályktunartillögu um Laxnesssetur standa þingmenn úr öllum flokkum. Fela á mennta- og menningarmálaráðherra í samvinnu við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og stjórn Gljúfrasteins að hefja uppbyggingu setursins. „Þar verði miðstöð allrar þekkingar um Halldór Laxness. Laxnesssetur verði jafnframt bókmenntasetur þar sem aðstaða verði til rannsókna og fræðistarfa,“ segir í tillögunni. Fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni að þegar sé búið að tryggja land til að byggja Laxnesssetur með tengingu við heimili skáldsins að Gljúfrasteini. „Ljóst er að Gljúfrasteinn stendur framarlega í flokki dýrmætra staða í íslenskri menningarsögu. Sú uppbygging sem þegar hefur átt sér stað er um margt til mikillar fyrirmyndar og hefur starfsemin svo sannarlega þegar sannað gildi sitt,“ segir í greinargerðinni þar sem minnt er á að Gljúfrasteinn hafi verið friðaður árið 2010 og sé nú viðurkennt safn. Plássleysi hái hins vegar starfseminni. „Húsið sjálft er því í rauninni safngripur og einstakt að innbúið allt sé varðveitt óbreytt frá því að Halldór Laxness og fjölskylda hans bjuggu þar. Safnkosturinn samanstendur af innbúinu öllu, listaverkum, bókasafni, ljósmyndum og skjölum. Möguleikar til rannsókna og miðlunar eru óþrjótandi en mikilvægt er að hægt sé að tryggja örugga varðveislu safnkostsins til framtíðar bæði í húsinu sjálfu og í geymslu,“ segir áfram í greinargerðinni. Þróunar- og ferðamálanefndin segir Mosfellsdalinn hafa sérstöðu í sögulegu og menningarlegu tilliti. Bærinn hvetji til þess að sú sérstaða verði gerð aðgengileg og sýnileg bæði heimamönnum og gestum. „Alhliða menningarsetur þar sem verður lögð áhersla á bókmenntir og rannsóknir ásamt umgjörð um ævi og starf Nóbelskáldsins stuðlar að því og væri bæði jákvæð og æskileg nálgun,“ segir ferðmálanefnd Mosfellsbæjar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira