Sprungið skólakerfi í Grindavík Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 9. desember 2016 07:00 Tveir leikskólar eru í Grindavík og eru þeir báðir búnir að sprengja utan af sér. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni til að stækka leikskólann á næsta ári. Vísir/Vilhelm
Fríða Egilsdóttir Mynd/grindavik.is Skólakerfið í Grindavík er sprungið, bæði í leik- og grunnskóla. Bærinn hefur vaxið svo hratt að dæmi eru um börn sem komast ekki inn í leikskóla fyrr en þau eru orðin tveggja og hálfs árs. Grunnskólinn í bænum, Hópskóli, er svo þéttsetinn að kennsla fer jafnvel fram á göngunum. Skólastjórnendur grunn- og leikskóla lögðu fram bókun á fundi fræðslunefndar í vikunni þar sem þeir lýstu yfir vonbrigðum nefndarinnar með niðurstöðu fjárhagsáætlunar um skólana næstu árin. Þar kemur fram að ekki er gert ráð fyrir fjármagni árið 2017 til að hefja undirbúning að stækkun grunn- og leikskóla. Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri á leikskólanum Laut, segir að stýrihópur hafi verið settur á laggirnar vegna langs biðlista í leikskólann og yfirfulls grunnskóla. Stýrihópurinn skoðaði meðal annars spá um íbúafjölgun í bænum og komst að því að byggja þarf við leikskólann og stækka grunnskólann áður en illa fer. Í bókun hans kemur fram að svo virðist sem framtíðarsýn starfshópsins hafi verið virt að vettugi. „Að mati hópsins þá þarf að fara að huga að því að byggja við leikskólann og stækka grunnskólann, ef bærinn ætlar að standa undir nafni, Grindavík – Góður bær. En þegar fjárhagsáætlunin um skólana var tekin fyrir, þá kom í ljós að það var ekkert gert í tillögum okkar, sem ég var ekki sátt við,“ segir hún. Í stýrihópnum voru fulltrúar foreldra í bænum, frá skólaskrifstofunni og skólastjórnendum, bæði grunn- og leikskóla. „Báðir leikskólarnir hér í Grindavík eru smekkfullir og börn komast ekki inn fyrr en þau eru tveggja og hálfs árs. Grunnskólinn er í tveimur húsum og það þarf stundum að kenna á göngunum. Það þarf að horfa fram í tímann því deiliskipulag og annað tekur oft langan tíma. Það þarf allavega að fara að huga að því í fjárhagsáætlun. Eins og við segjum í bókuninni þá finnst okkur þessi tími sem við lögðum í þetta hafa verið virtur að vettugi,“ segir leikskólastjórinn. Staðgengill bæjarstjóra, Jón Þórisson, er erlendis og náðist ekki í hann við vinnslu fréttarinnar. Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs, var sagður í fríi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Fleiri fréttir Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sjá meira