Lögsækja bandaríska knattspyrnusambandið fyrir að borga strákunum miklu meira Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2016 17:45 Hope Solo fagnar HM-gullinu með liðsfélögum sínum síðasta sumar. Vísir/Getty
Carli Lloyd, Becky Sauerbrunn, Alex Morgan, Megan Rapinoe og Hope Solo eru allt leikmenn heimsmeistaraliðs Bandaríkjanna í kvennafótbolta og þær eru allar í hópi þekktustu íþróttamanna Bandaríkjanna eftir sigur sinn á HM í Kanada á síðasta ári. Þær fimm hafa nú hafið herför gegn launamisrétti milli kynjanna þegar kemur að bónusgreiðslum til leikmanna í landsliðum Bandaríkjanna í fótbolta. Heimsmeistararnir fimm hafa nú lögsótt bandaríska knattspyrnusambandið og mun málsóknin vera lögð fyrir hjá sérstakri nefnd sem tekur fyrir launajafnrætti á vinnumarkaði í Bandaríkjunum, svokallaðri Equal Employment Opportunity Commission. Karlarnir í bandaríska knattspyrnulandsliðinu fá fjórum sinnum meira en konurnar og það breytir engu þótt að þeir hafi aldrei unnið stórmót en bandarísku stelpurnar séu meðal þeirra sigursælustu í sögunni. Niðurstaða nefndarinnar gæti verið söguleg í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna í bandarískum íþróttum. „Tölurnar segja alla söguna," sagði markvörðurinn Hope Solo í yfirlýsingu frá leikmönnunum. „Við erum bestar í heiminum, höfum unnið þrjá heimsmeistaratitla, fjögur Ólympíugull og leikmenn karlalandsliðsins fá meira fyrir að láta sjá sig en við fáum fyrir að vinna stóramót," sagði Hope ennfremur. Meðal rökstuðningsins með kærunni er að landsliðskonurnar séu verðmætari en landsliðskarlarnir fyrir bandaríska knattspyrnusambandið eftir frábært gengi liðsins í gegnum tíðina. Lögfræðingur landsliðskvennanna segir að í raun ættu þær að biðja um meira en karlarnir en fyrsta skrefið væri að þær fá greitt jafnmikið.
Fótbolti Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Fleiri fréttir Enn tapa Albert og félagar Nottingham Forest - Manchester City | Mæta City-menn þungir til leiks? Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Sjá meira