Þokast hjá BHM og hjúkrunarfræðingum Óli Kristján Ármannsson skrifar 16. mars 2016 07:00 Lokasprettur kjaraviðræðna og deilna síðasta árs stendur enn. Myndin er frá mótmælastöðu í aðgerðum BHM og hjúkrunarfræðinga á Austurvelli í fyrrasumar, þegar viðræður stóðu við ríkið, en félögin eiga enn ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga. vísir/Stefán
Samninganefndir Bandalags háskólamanna (BHM) og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa fundað stíft síðan fyrir síðustu helgi, að því er Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir. Enn er haldið í vonina um að saman náist í viðræðunum.Bandalag Háskólamanna, BHM, Héraðsdómur Reykjavíkur, kjaradeila, Páll Halldórsson, verkfallslög, Þórunn Sveinbjarnardóttir„Það er verið að vinna úr tilboði sveitarfélaganna og skiptast á upplýsingum,“ segir Þórunn og bætir við að þau hjá BHM séu „hæfilega bjartsýn“ á framhaldið. „Við viljum auðvitað fara að sjá fyrir endann á þessu og vonandi verður það á næstu dögum, en það er með þetta eins og áður í samningaviðræðum, að þetta er ekki búið fyrr en það er búið.“ Um leið áréttar Þórunn að viðræðurnar hafi engu að síður þokast áfram frá því í lok síðustu viku. „Við vonum að það beri einhvern árangur í þessari viku.“ Náist ekki saman á næstu dögum segir Þórunn ýmislegt hafa verið íhugað hjá samtökunum varðandi næstu skref. „En það hafa engar ákvarðanir verið teknar og við einbeitum okkur að því núna, samninganefndir þessara BHM-félaga sem eftir eru, að vinna með tilboð sveitarfélaganna og sjá hvort það sé grundvöllur samnings. Það tekur tíma, þetta er mikil útfærsla og nákvæmnisvinna.“ Þórunn segir verkefnið nokkuð flókið vegna þess að í sumum tilvikum hafi þurft að gera grundvallarbreytingar á launakerfinu. „Og þá er betra að vanda sig bara.“Ólafur G. Skúlason formaður Félag íslenskra hjúkrunarfræðingaÓlafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, tekur í svipaðan streng. Enn hafi ekki komið til umræðu í röðum hjúkrunarfræðinga að boða til aðgerða til að þrýsta á um gerð kjarasamnings. „Við erum bara í viðræðum enn þá. Það gengur hægt, en það gengur samt,“ segir hann. Enn sem komið er hafa því sjúkraliðar einir boðað til verkfallsaðgerða til að knýja á um samninga við sveitarfélögin. Félagið samþykkti í byrjun vikunnar boðun verkfalls frá og með mánudeginum 4. apríl næstkomandi hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Boðað verkfall sjúkraliða nær til öldrunar- og heilbrigðis- og félagsþjónustu sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Viðbrögð við bókasafnstillögu bendi til læsisvanda Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Sjá meira