Sýndi yfir hundrað myndir af holum í Reykjavík Þórdís Valsdóttir skrifar 16. mars 2016 07:00 Rætt var um gatnaviðhald á borgarstjórnarfundi í gærkvöld. Ástand gatna í borginni þykir óviðunandi. Vísir/Pjetur
Rætt var um slæmt ástand gatna á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi. Mikið hefur verið rætt um óviðunandi ástand gatna borgarinnar að undanförnu. Götur eru víða illa farnar og mikið af holum eru sjáanlegar. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir myndum frá borgarbúum af ástandi gatna og fékk sendar hundruð mynda sem teknar voru víðsvegar um borgina. Myndunum varpaði hann á vegg á fundinum í gærkvöld. „Markmiðið með myndbirtingunum var að sýna borgarfulltrúum hvernig ástandið er um alla borg. Ég tel að mér hafi tekist nokkuð vel að upplýsa þá um að ástandið sé ekki gott. Það er að minnsta kosti ekki viðunandi,“ segir Kjartan. Í síðustu viku var samþykkt í borgarráði samkomulag milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um viðhald og endurnýjun gatna og segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, að viðgerðir séu þegar hafnar. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin meta þörfina á viðhaldi og endurnýjun og setja fram sameiginlega framkvæmdaáætlun sem miðar að því að ráða bót á ástandi gatna, að sögn Dags. „Mikilvægt er að íbúar sveitarfélaganna láti vita af holum til að hægt sé að huga að þeim," segir Dagur og bætir við að endurnýjun gatna hefjist um leið og viðrar til þess. Kjartan telur þó að nauðsynlegt sé að borgin auki fjármagn til viðgerða á götum. „Samkvæmt fjárhagsáætlun er bara verið að setja 500 milljónir króna í malbiksviðhald borgargatna í Reykjavík en það þyrftu að vera 700 milljónir bara til þess að halda í horfið," segir Kjartan.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Sjá meira