Aðgerðir ESB eru sagðar misheppnaðar Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. maí 2016 07:00 Þýskir hermenn bjarga flóttafólki úr sjávarháska á Miðjarðarhafinu. vísir/epa
Bresk þingnefnd segir hernaðaraðgerðir Evrópusambandsins gegn smygli með flóttafólk yfir Miðjarðarhafið ekki virka sem skyldi. Að vísu hafi tekist að bjarga lífi fjölda fólks, en ekki sé ráðist að orsökum vandans heldur aðeins reynt að bregðast við afleiðingunum. Ekki hafi tekist að hafa hendur í hári þeirra, sem standa að baki smyglinu. Þeir sem hafa verið handteknir hafi ekki gegnt stóru hlutverki. Þá hafi flóttafólki verið stefnt í enn meiri hættu með því að eyðileggja trébáta, sem notaðir hafa verið til að flytja fólk yfir hafið. Þetta hafi einfaldlega orðið til þess að fólkið hefur verið sent út á haf á gúmmíbátum, sem eru enn ótryggari fleytur. Evrópusambandið kallar þessar hernaðaraðgerðir á Miðjarðarhafinu Operation Sophia. Þær voru samþykktar í maí á síðasta ári, nokkrum vikum eftir að 800 flóttamenn fórust þegar yfirfullum bát hvolfdi út af strönd Líbíu. Herskip frá Evrópuríkjum fylgjast nú með stóru svæði fyrir miðju Miðjarðarhafsins, einkum út af ströndum Líbíu og þaðan til Ítalíu. Upplýsingum er safnað, fólki er bjargað og smyglbátar eru teknir til eyðileggingar. Niðurstaða nefndarinnar er samt sú, að hernaðaraðgerðir einar geti aldrei leyst þann vanda sem við er að etja. Til skamms tíma eigi Evrópusambandið að leggja mesta áherslu á að leita uppi og bregðast við ólöglegu peningaflæði sem tengist smygli á fólki: Smyglferðir með fólk yfir Miðjarðarhafið séu hins vegar fjármagnaðar með óformlegum hætti, oft án þess að flóttafólkið sjálft komi þar nærri. Til lengri tíma litið þurfi svo að hafa í huga að flóttamannastraumurinn til Evrópu sé aðeins partur af fólksflutningum á heimsvísu. Þessar hernaðaraðgerðir gegn smyglurum eru einn af nokkrum meginþáttum í þeirri stefnu Evrópusambandsins í að hindra að flóttafólk komist til aðildarríkjanna í stórum stíl. Annar liður í þessari viðleitni er samningurinn við Tyrkland um að taka aftur við flóttafólki, sem fer yfir hafið frá Tyrklandi til Grikklands. Flóttafólkinu er nú safnað saman á grísku eyjunni Lesbos, þar sem það bíður eftir því að verða sent aftur yfir til Tyrklands.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Sjá meira