Ögmundur vill að almannaréttur til að njóta náttúrunnar sé virtur Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 21. júlí 2016 07:00 Ögmundur Jónasson, þingmaður. vísir/vilhelm
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segir alla nýtingu á náttúru landsins í atvinnurekstrarlegu tilliti þurfa að vera innan hófsemismarka. Þá þurfi einnig að virða almannarétt til náttúru. Vísar Ögmundur þar til leigu fyrirtækisins Raufarhóls hf. á Raufarhólshelli sem Fréttablaðið greindi frá í gær. Fyrirtækið hyggst byggja upp aðstöðu og rukka inn í hellinn. „Mér finnst um tvenns konar prinsipp að ræða sem þarf að hyggja að í þessu sambandi,“ segir Ögmundur og útskýrir: „Annars vegar þá grundvallarafstöðu að enginn eigi að vera þess umkominn að selja aðgang að náttúruperlum og meina fólki að sama skapi aðgang að þeim nema fyrir gjald. Hitt grundvallarprinsippið er að mínu mati að atvinnustarfsemi í tengslum við ferðamennsku á að geta gefið eitthvað af sér. Því hef ég alla tíð verið fylgjandi.“ Ögmundur spyr sig hins vegar hvert þróunin leiði. „Á að fara að loka öllum hellum landsins og selja að þeim aðgang undir því yfirskyni að þeir séu okkur svo varasamir, eða að hægt sé að gera þá eftirsóknarverðari?“ spyr hann. Þá segir Ögmundur nauðsynlegt að ræða þessi mál eftir næstu alþingiskosningar því núverandi stjórnvöld sýni fyrst og fremst áhuga á að styrkja einkaeignarrétt. „Það hefur verið þyngra en tárum taki að horfa upp á þjónustulund stjórnvalda við einkaaðila sem vilja hagnast á náttúruperlum sem engin manneskja ætti að geta gert tilkall til að einoka í eigin þágu. Það er dapurlegt að búa við ríkisstjórn sem ekki er reiðubúin að þjóna almannahag.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Hópur fjárfesta hefur leigt Raufarhólshelli í Þrengslum og hyggst byggja upp aðstöðu og selja ferðamönnum aðgang. Landeigendur segja verkefnið mikilvægt til að vernda umhverfi náttúruperlunnar vegna aukinnar ásóknar ferðamanna. 20. júlí 2016 07:00 Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Erlent Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Innlent Fleiri fréttir Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Sjá meira
Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Hópur fjárfesta hefur leigt Raufarhólshelli í Þrengslum og hyggst byggja upp aðstöðu og selja ferðamönnum aðgang. Landeigendur segja verkefnið mikilvægt til að vernda umhverfi náttúruperlunnar vegna aukinnar ásóknar ferðamanna. 20. júlí 2016 07:00