Auka framlög til skólamála um 1,5 milljarða króna Þorgeir Helgason skrifar 8. desember 2016 07:00 Meirihluti borgarstjórnar samþykkti að auka fjárframlög til skólamála um einn og hálfan milljarð á næsta ári. vísir/gva „
Þessi jákvæða þróun í rekstrinum er fagnaðarefni en um leið er mikilvægt að halda áfram á sömu braut af því að rekstur sveitarfélaga er viðkvæmur. Við höfum sagt að við vildum nýta það svigrúm sem skapast hefur til að snúa vörn í sókn í skólamálum,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. Ákveðið var á borgarstjórnarfundi að hækka framlög til grunn- og leikskóla borgarinnar um 1,5 milljarða króna. Það var gert þegar fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2017 var samþykkt ásamt fimm ára áætlun til ársins 2021 seint í fyrrakvöld. Í tilkynningu frá borgarstjóra segir að viðsnúningur hafi orðið á rekstri borgarinnar á árinu vegna hærri tekna og lægri útgjalda. Því var ákveðið að auka fjárframlög til skólamála. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. „Við sátum hjá vegna þess að við hefðum staðið allt öðruvísi að gerð fjárhagsáætlunarinnar. Það er jákvætt að það sé viðsnúningur í rekstri borgarinnar en það eru ekki öll kurl komin til grafar og við eigum eftir að sjá hvernig árið mun koma út í heild,“ segir Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Áslaug María segist ekki hafa mikla trú á áætlanagerð meirihlutans og mikið sé um óútfærðar tillögur sem standist ekki áætlun. „En það þarf auðvitað að auka framlög til skólamála og fara í ýmsar breytingar þar,“ segir Áslaug. Á næstu mánuðum stendur til að vinna að frekari greiningu á fjármálum grunnskólanna og starfsemi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira