Flúðu féló vegna myglu Þorgeir Helgason skrifar 8. desember 2016 07:00 Senda þurfti óléttan hælisleitanda með sjúkrabíl á Landspítalann vegna myglu. „
Konan mín, sem var gengin sex mánuði á leið, var orðin mjög veik vegna myglunnar. Hún var með útbrot á öllum líkamanum og sonur minn var einnig farinn að fá útbrot,“ segir Tony Cana, albanskur hælisleitandi. Fjölskyldan bjó í húsnæði á vegum velferðarsviðs Reykjanesbæjar. Eftir að móðirin hafði verið send með sjúkrabíl á Landspítalann, vegna myglunnar í íbúðinni, ákvað hún að yfirgefa húsnæðið. Fjölskyldan hafði búið í húsnæðinu frá apríl til október en leigir núna íbúð í Reykjavík. Tony segir að þau hjónin hafi margoft kvartað til velferðarsviðs Reykjanesbæjar vegna ástands íbúðarinnar en ekkert hafi verið gert til að útrýma myglunni. Einu sinni hafi starfsmaður velferðarsviðsins heimsótt þau og skoðað íbúðina. Það hafi hins vegar hvorki haft í för með sér að fjölskyldunni væri boðið nýtt húsnæði né að ráðist væri í endurbætur.Mikil mygla myndaðist í lofti íbúðarinnar vegna vatnsleka frá þakinu. „Ég get ekki séð að það hafi komið neinar umkvartanir vegnu myglu eða mygluskemmda í íbúðum okkar. Það væri mjög ólíkt okkur ef það kæmi kvörtun og hún væri hunsuð. Þegar fara hefur þurft í einhverjar lagfæringar eða endurbætur á húsnæði þá hefur það yfirleitt gengið mjög fljótt og hratt fyrir sig,“ segir Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs. Um það bil tveir mánuðir eru liðnir frá því að fjölskyldan yfirgaf íbúðina. Konan hefur hins vegar ekki náð fyrri heilsu á ný og enn má sjá útbrot á henni. Frá því að hjónin komu til Íslands hafa þau reynt að fá pláss á leikskóla fyrir fjögurra ára son sinn. „Við höfum átt í stöðugum samskiptum við bæjar- og borgaryfirvöld . Síðustu tvo mánuði hefur okkur verið sagt í hverri viku að hann fái pláss í næstu viku en það hefur aldrei verið staðið við það,“ segir Tony. Tony varð konu að bana fyrir nokkrum árum með gáleysislegum akstri. Fjölskylda konunnar hefur hótað Tony og syni hans lífláti snúi þeir aftur til Albaníu. „Ef við þurfum að fara aftur til Albaníu þá mun ég fara til fjölskyldunnar og segja þeim að þau geti drepið mig en biðja þau um að þyrma lífi sonar míns.“ Útlendingastofnun hefur hafnað því að veita fjölskyldunni hæli hér á landi og þá ákvörðun hefur kærunefnd útlendingamála staðfest.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Sektaður fyrir að aka á göngugötu Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Sjá meira