Vara við niðurskurði í viðhaldi á vegum Höskuldur Kári Schram skrifar 8. desember 2016 18:45
Forstjóri Samgöngustofu og framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda vara við því að dregið verði úr viðhaldi á þjóðvegum landsins á næsta ári og hvetja stjórnvöld til setja meiri fjármuni í málaflokkinn. Þeir segja að vegakerfið ráði í dag varla við það álag sem fylgir vaxandi straumi ferðamanna og að minna viðhald leiði til aukinnar slysahættu. Vegagerðin þarf mögulega að fresta nauðsynlegum viðhaldsframkvæmdum á næsta ári þar sem ekki gert ráð fyrir nægilegu fjármagni til stofnunarinnar í fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var á þriðjudag. Þetta kom fram í máli vegamálastjóra í fréttum Stöðvar tvö í gær. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda varar við þessari þróun. „Við höfum verulega áhyggjur af þessu. Það er ljóst að það er búið að vera að spara umfram það sem eðlilegt er á undanförnum árum til viðhalds og nýbyggingar á vegum. Við sjáum það að ástand vega er verulega slæmt og þetta er farið að koma niður á öryggi vegfarenda,“ segir Runólfur. Undir þetta tekur Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu. „Öryggi í samgöngum er forvörn, fræðsla og mannvirki saman. Við verðum að beita þeim ráðum sem við höfum til þess að fækka slysum og það gerum við ekki nema með auknu og bættu viðhaldi á samgöngumannvirkjum og forvörnum og fræðslu,“ segir Þórólfur.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira