Mikilvægt að bjóða nám í heimabyggð 10. júní 2016 07:00 Ingunn Jónsdóttir og samstarfsfólk frá erlendu háskólunum. Mynd/Háskólafélag Suðurlands
Menntamál „Þetta nám, Ferðamálabrúin, sem við erum að hefja í haust er hugsað fyrir fólk sem starfar við skipulagningu og/eða rekstur ferðaþjónustufyrirtækja eða hefur áhuga á slíku og námsþættirnir miða að því,“ segir Ingunn Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands, um nám sem mun standa til boða á Selfossi í haust. Námið er tveggja anna langt og er um það bil þrjátíu prósent af fullu námi. „Nám í heimabyggð er eitt af þessum stóru verkefnum er snúa að jákvæðri byggðaþróun,“ segir Ingunn. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ sjóðnum og komu Háskólinn í Malaga á Spáni og University of Highlands and Islands í Skotlandi, sem Ingunn segir standa framarlega á þessu sviði, að verkefninu ásamt Háskólafélagi Suðurlands. Háskólana segir hún eiga heiðurinn af flestum kúrsum sem upp á er boðið. „Mikið er lagt upp úr því að nemendurnir eigi auðvelt með að koma fram og miðla upplýsingum, hvort sem er við ferðamenn eða samtarfsfólk því góð samskipti eru lykilatriði í öllum okkar störfum. Hvor önn hefst því á helgarlöngum kúrs sem kallast Samskipti, miðlun og tjáning,“ segir Ingunn. Námið segir hún hugsað sem raunhæft nám. „Nemendurnir eru að fást við mjög raunverulega verkefni með verkfærum sem þau halda áfram að beita á vinnumarkaðinum.“ Kennsla fer öll fram á Selfossi en gert er ráð fyrir nemendum í fjarnámi þar sem Háskólafélagið rekur fjarnámsver víðsvegar um Suðurland. „Það sem við erum að fara af stað með í haust er svokallað „pilot“ af náminu, það er prufukeyrsla, sem er hugsuð í þeim tilgangi að hafa svigrúm til þess að fínpússa námsþættina og er nemendum gerð grein fyrir því að þeir þurfa að vera duglegir við endurgjöf til okkar um þeirra upplifun á kúrsunum sem og allri nálgun,“ segir Ingunn. Hún vonast til þess að eftir veturinn verði hægt að halda náminu úti áfram á Suðurlandi. Fyrir má sækja annað ferðamálanám víðs vegar um landið. Til að mynda ferðamálafræði í Háskóla Íslands og á Hólum og ferðamálabraut Framhaldsskólans á Laugum. thorgnyr@frettabladid.is
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira