Telja frumvarp um LÍN til góðs fyrir flóttamenn Nadine Guðrún Yaghi skrifar 10. júní 2016 07:00 Í frumvarpinu eru nýmæli um að þeir sem eru með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að vera flóttamenn geta fengið námsaðstoð. fréttablaðið/valli „
Ég held að það skipti gríðarlega miklu máli þegar við erum að taka á móti flóttamönnum að við tryggjum sem best að þeir fái tækifæri til að mennta sig og komast þannig sem hraðast inn í samfélagið okkar,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, en hann segir fyrirhugaðar breytingar á námslánakerfi LÍN vera til góðs fyrir flóttamenn. Það sé breyting þar á frá núverandi kerfi en Illugi lagði fram nýtt frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna, LÍN, í síðasta mánuði. Frumvarp Illuga var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í maí en ekki er enn búið að mæla fyrir því á Alþingi. Í frumvarpinu eru nýmæli um að þeir sem eru með dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að vera flóttamenn geti fengið námsaðstoð. Í dag er það hins vegar þannig að flóttamenn þurfa að uppfylla skilyrði til að fá námsaðstoð. Í fyrsta lagi að vera í hjúskap með íslenskum ríkisborgara sem uppfylli sjálfur skilyrði sjóðsins eða að hann hafi haft lögheimili hér á landi í tvö af fimm árum. „Aðalbreytingin er sú að áður þurfti að uppfylla þessi skilyrði sem mun þá ekki þurfa lengur. Hafi flóttamaður fengið dvalarleyfi á grundvelli laga um útlendinga þá getur viðkomandi sótt um námsaðstoð,“ segir Illugi og bætir að við þetta hagnist allt samfélagið. „Með því að þeir fái möguleika á því að nýta krafta sína og getu og með því að fjárfesta í tækifærum fyrir flóttamenn erum við um leið að fjárfesta í betra samfélagi.“ Illugi áréttar að þegar búið sé að taka ákvörðun um að taka á móti flóttamönnum þá skipti miklu máli að allt sé gert til að einstaklingarnir aðlagist samfélaginu og fái tækifæri til að vaxa og dafna. Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða kross Íslands, segir að Rauði krossinn fagni því að flóttafólki verði tryggður þessi réttur til jafns við aðra, enda fullkomlega sjálfsagður hlutur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. júní 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira