Stórmeistararnir Héðinn og Jóhann efstir og jafnir fyrir lokaumferðina Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. júní 2016 23:01 Hjörvar Steinn og Héðinn börðust fram í síðustu umferð á Skákþingi Íslands í fyrra. Skák þeirra nú varð öllru styttri en þá. mynd/skak.is
Stórmeistarnir Jóhann Hjartarson og Héðinn Steingrímsson eru efstir og jafnir fyrir lokaumferð Skákþings Íslands. Þegar tíu umferðum er lokið hafa þeir félagar báðir 7 1/2 vinning. Jóhann telfdi í dag við Örn Leó Jóhannsson, yngsta keppanda landsliðsflokksins í ár, og hafði hvítt. Snemma í skákinni vann hann peð og hafði eftir það frumkvæðið. Það lét hann aldrei af hendi en að endingu féll Örn Leó á tíma. Héðinn Steingrímsson fékk heldur ódýran vinning í dag en andstæðingur hans, stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson, lét ekki sjá sig. Hjörvar var fyrir mótið stigahæstur þátttakenda, 2580 ELO stig, en hann hefur átt afleitu gengi að fagna og er með þrjá vinninga.Guðmundur Gíslason, hér til hægri, náði sínum síðasta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.mynd/skak.isAlþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson var fyrir umferðina í dag með jafn marga vinninga og Jóhann og Héðinn en tapaði fyrir kollega sínum Guðmundi Kjartanssyni. Bragi hafði hvítt og var í eilitlu basli þegar hann lék herfilega af sér og var skyndilega hróki undir og með koltapaða stöðu. Hann gaf því eftir 31. leik. Jón Viktor Gunnarsson var í 4. sæti fyrir umferðina hálfum vinningi á eftir mönnunum þremur á toppnum. Hann gerði í dag jafntefli við Einar Hjalta Jensson. Bæði Jón Viktor og Bragi hafa 6 1/2 vinning og eygja möguleika á að jafna Héðinn og Jóhann. Til þess verða þeir að vinna sínar skákir og stórmeistarnir að tapa sínum. Verði tveir efstir og jafnir verður háð einvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Þá er vert að nefna að í umferðinni í gær náði Guðmundur Gíslason sínum þriðja og síðasta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Hann þar nú aðeins að hífa sig yfir 2400 ELO stiga múrinn til að hljóta útnefninguna alþjóðlegur meistari. Guðmundur náði áfanganum með því að gera jafntefli við Jóhann Hjartarson í gær. Vestfirðingurinn byrjaði mótið skelfilega, tapaði fyrstu þremur skákunum, en tapaði síðan ekki skák í næstu sex umferðum. Í kvöld tapaði hann hins vegar fyrir Birni Þorfinnssyni eftir að hafa ofmetið sóknartækifæri sín. Lokaumferðin fer fram á morgun og hefst klukkan 13 í húsakynnum Tónlistarskóla Seltjarnarness. Mennirnir í fjórum efstu sætunum hafa allir svart. Jóhann teflir við stigalægsta mann mótsins, nafna sinn Ingvason, á meðan Héðinn mætir Einari Hjalta. Bragi teflir við Örn Leó og Jón Viktor við Guðmund Kjartansson. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu hér.
Tengdar fréttir Jóhann Hjartarson leiðir Skákþingið eftir ótrúlegar sviptingar Þrír, þar á meðal Íslandsmeistari síðasta árs, fylgja fast á hæla Jóhanns. 8. júní 2016 20:36 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira
Jóhann Hjartarson leiðir Skákþingið eftir ótrúlegar sviptingar Þrír, þar á meðal Íslandsmeistari síðasta árs, fylgja fast á hæla Jóhanns. 8. júní 2016 20:36