Helmingur sendiherra í ráðuneytinu Sveinn Arnarsson skrifar 8. janúar 2016 07:00 Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Nærri helmingur starfandi sendiherra í íslensku utanríkisþjónustunni hefur aðsetur hér á landi. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vera í nokkrum vafa um að hægt sé að hagræða í utanríkisþjónustu Íslendinga til að ná fram sparnaði í málaflokknum. „Við vorum með fastmótaðar tillögur um utanríkismálin í hagræðingarhópnum og lögðum til sparnað á því sviði eins og öðrum. Við ættum einnig að leggja meiri áherslu á samskipti okkar við Bandaríkjamenn sem eru eina stórveldið í heiminum í dag. Þar liggja mestu hagsmunir okkar Íslendinga,“ segir Guðlaugur Þór. „Til dæmis erum við nú að opna sendiskrifstofu í Strasbourg sem við höfðum áður lokað svo það er verið að bæta í.“Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður sjálfstæðisflokksinsvísir/vilhelm„Ýmis verkefni ráðuneytisins eru þess eðlis að gagnlegt er að sendiherra sé í forsvari fyrir þau,“ segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. „Má sem dæmi nefna Eystrasaltsráðið og Norðurslóðir. Samkvæmt forsetaúrskurði um sendiráð, fastanefndir og sendiráðsskrifstofur fer ráðuneytið sjálft með fyrirsvar gagnvart nokkrum ríkjum og getur þá skipað sendiherra gagnvart þeim með búsetu í Reykjavík eða eftir því sem ástæða er til. Svo er rétt að hafa í huga að á hverjum tíma er hluti flutningsskyldra starfsmanna, sendiherrar og aðrir, við störf í ráðuneytinu á meðan hluti þeirra er við störf erlendis.“ Um áramótin skipaði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fjóra nýja sendiherra sem allir eru starfandi í utanríkisráðuneytinu. Skrifstofustjóri rekstrar ráðuneytisins, mannauðsstjóri ráðuneytisins, sendiráðunautur uppbyggingarsjóðs EES og starfsmaður utanríkisþjónustunnar voru skipuð sendiherrar. Af þeim þrjátíu og níu sendiherrum sem starfandi eru í íslensku utanríkisþjónustunni eru aðeins tólf þeirra konur eða þrjár af hverjum tíu. Sjötíu prósent sendiherra eru karlar. Þó hefur Gunnar Bragi verið duglegur á síðustu misserum að skipa konur í embætti sendiherra.
Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira