Utanríkisráðherra: „Við erum alls ekki að ganga of langt í fjölgun sendiherra“ Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 8. janúar 2016 20:00
Utanríkisráðherra segir ekki verið að bæta í í utanríkisþjónustunni með fjölgun sendiherra um áramótin og opnun sendiskrifstofunnar í Strasbourg. Hann segir utanríkisráðuneytið hafa hagrætt meira en flest önnur ráðuneyti frá hruni. Nærri helmingur starfandi sendiherra í íslensku utanríkisþjónustunni hefur aðsetur hér á landi - af þrjátíu og níu sendiherrum mæta nítján til vinnu á Íslandi. Það fjölgaði i þessum hópi um áramótin þegar utanríkisráðherra tilnefndi fjóra nýja sendiherra. Greint er frá þessu í Fréttablaðinu í dag en þar segist Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ekki vera í nokkrum vafa um að hægt sé að hagræða í utanríkisþjónustu Íslendinga til að ná fram sparnaði. „Við erum alls ekki að ganga of langt í fjölgun sendiherra,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. „Við þurfum alltaf að hafa ákveðinn hóp af sendiherrum af því að við þurfum að hafa sendiherra erlendis og svo erum við með ýmis verkefni og stöður í ráðuneytinu sem væri æskilegt að sendiherrar væru í. Hópurinn sem við höfum haft er á bilinu 38 til 43 og það er hæfilegur hópur. Það fylgir í raun enginn auka kostnaður því að vera með sendiherra heima, það er sáralítill launamunur á sendiherra og þeim sem er næst honum, það er, þegar þeir eru heima.“ Stefnt er á að opna sendiskrifstofur á ný í Strasbourg og vilja sumir, þar á meðal Guðlaugur Þór, meina að verið sé að bæta í. Utanríkisráðherra segir það af og frá. „Við erum að opna aftur í Strasbourg. Þar höfum við verið eina ríkið af tæplega fimmtíu ríkjum sem ekki er með sendiherra á staðnum til að sinna mikilvægum málum. Mannréttindadómstóllinn, sem við Íslendingar höfum því allt of mikla reynslu af, er þarna. Þarna er líka Evrópuráðið. Þannig að Strasbourg er mjög mikilvæg alþjóða miðstöð sem að við þurfum að sinna,“ segir Gunnar Bragi. „Utanríkisráðuneytið hefur hagrætt meira en flest önnur ráðuneyti frá hruni.“
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Innlent Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fleiri fréttir Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Sjá meira