Fjögurra barna faðir vann milljónir í lottó: „Er þetta virkilega rétt?“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. desember 2016 10:56 Ekki amalegt að vinna 22,6 milljónir króna. vísir/valli
Í morgun kom fjögurra barna faðir af höfuðborgarsvæðinu á skrifstofu Getspár í Laugardal en hann var vægast sagt ánægður enda vann hann 22,6 milljónir í lottó á laugardaginn. Tveir voru með allar tölur réttar í drættinum þá en þessi vinningshafi hafði keypt miðann sinn á lotto.is. Í tilkynningu frá Getspá er haft eftir manninum að vinningurinn gæti ekki komið á betri tíma þar sem fjölskyldan er stór, jólin eru að koma og húsnæði fjölskyldunnar að springa utan af henni. Í tilkynningunni kemur fram að vinningshafinn hafi veitt því athygli strax á laugardagskvöldið að hann væri með allar tölur réttar. „Hann öskraði upp yfir sig og kallaði „er þetta rétt, er þetta rétt, er þetta virkilega rétt?“ Kona mannsins kom hlaupandi til hans þar sem hún hélt að maður sinn væri að fá hjartaáfall en sem betur fer var ekki svo heldur bara gleðiöskur frá hinum lukkulega lottóvinningshafa. Starfsfólk Íslenskrar getspár óskar þessum heppna vinningshafa innilega til hamingju,“ segir í tilkynningu Getspár. Þar kemur jafnframt fram að hinn vinningshafinn frá því á laugardaginn sé ekki kominn fram. Miðinn var keyptur hjá N1 í Borgarnesi og biðlar því starfsfólk Getspár til þeirra sem keyptu lottómiða þar um að líta vel á miðann sinn þar sem þar gæti hugsanlega leynst 22,6 milljónir króna.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira