Þáttaskil við varðveislu íslenskra dýrgripa Svavar Hávarðsson skrifar 22. janúar 2016 07:00 Þjóðminjar eru dýrgripir sem nauðsynlegt er að varðveita og geyma við bestu aðstæður. vísir/gva
Þáttaskil verða í þjóðminjavörslu á Íslandi í sumar þegar varðveislu- og rannsóknasetur Þjóðminjasafns Íslands verður tekið í notkun. Undirritun samnings um setrið fer fram í dag, en í setrinu verða kjöraðstæður til varðveislu þjóðminja og vel búin starfsaðstaða til rannsókna, forvörslu, sýningaundirbúnings og kennslu á fagsviði Þjóðminjasafnsins sem er höfuðsafn á sviði menningarminja. Í frétt frá ÞÍ segir að húsnæðið, sem er að Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, sé 4.270 fermetrar að stærð. Í húsinu verða öryggisgeymslur fyrir stóran hluta safnkosts Þjóðminjasafns og starfsaðstaða fyrir starfsmenn, sérfræðinga, fræðimenn og nemendur. Fullkomin hita- og rakastýring verður í öryggisgeymslum svo tryggja megi varðveislu viðkvæms safnkosts. Í húsnæðinu verða einnig rannsóknarstofur, forvörsluverkstæði, aðstaða til sérhæfðrar varðveislu og rannsókna jarðfundinna gripa og aðstaða til undirbúnings sýninga. Hluti safnkostsins verður áfram varðveittur í húsnæði safnsins í Kópavogi, þar sem Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni verður áfram til húsa. Einnig verður í varðveislu- og rannsóknasetrinu aðstaða til kennslu en Þjóðminjasafn Íslands er háskólastofnun sem felur í sér mikilvægt hlutverk gagnvart rannsóknaraðilum og námsmönnum. Hönnuður húsnæðis er ArkÞing en það er í eigu fasteignafélagsins Regins.
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira