Tvíburabræður létust í sleðaslysi Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. febrúar 2016 22:53 Drengirnir skullu á hliði sem hulið er með bláu neti á myndinni. vísir/ap
Kanadíska þjóðin er í sárum eftir að tvíburabræður létust í því sem talið er hafa verið sleðaslys í kanadísku borginni Calcary í gær. Drengirnir voru úrskurðaðir látnir þegar sjúkraflutningamenn komu á slysstað í Canada Olympic Park en sex aðrir unglingspiltar voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús. Ekki er talið að þeir séu alvarlega slasaðir. „Við teljum að það hafi að minnsta kosti 8 unglingar, allt strákar, brotið sér leið inn á svæðið til að renna sér niður bobsleðabrautina,“ sagði lögreglan í tilkynningu í dag. Hún telur að sleði drengjanna hafi rekist á hlið á miklum hraða á leiðinni með fyrrgreindum afleiðingum. Greint var frá því í kanadískum miðlum í dag að drengirnir hafi heitið Evan og Jordan Caldwell og að þeir hafi verið 17 ára gamlir. 2 killed in #Calgary bobsled crash identified as twins Jordan and Evan Caldwell: https://t.co/nPBJh6E2Dl pic.twitter.com/aPLFXBxLdM— CBC News Alerts (@CBCAlerts) February 7, 2016 Caldwell-fjölskyldan sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hún sagði að drengjanna yrði sárt saknað. „Drengirnir okkar Jordan og Evan voru skær ljós í líf allra þeirra sem þá þekktu,“ sagði meðal annars í tilkynningunni. „Við syrgjum fráfall þeirra en höfum trú á nýja heimili þeirra á himnum. Þau stuttu 17 ár sem við áttum með þeim voru gjöf; sem í var ást, hlátur og hlýjar minningar.“ Verið er að yfirfara myndbandsupptökur til að sjá hvernig og hvers vegna drengirnir brutu sér leið inn á svæðið. Á þessari stundu er ekki vitað hvort einhver þeirra hafi starfað í garðinum eða muni eiga yfir höfði sér kæru vegna málsins. Umsjónarmaður garðsins, sem hýsti Vetrarólympíuleikana árið 1988, segir að öryggismál garðsins, sem fyrir slysið voru talin óaðfinnanleg, verði yfirfarin vegna málsins.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira