Noregur: Mánaðargömul stúlka í lífshættu eftir að foreldrar beittu hana ofbeldi Atli ísleifsson skrifar 14. janúar 2016 11:29 Foreldrar stúlkunnar komu með hana á læknavakt í Ósló á föstudaginn í síðustu viku og var þeim vísað beint á Ullevål háskólasjúkrahúsið. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir7AFP
Fjögurra vikna gamalt stúlkubarn í Noregi er í lífshættu eftir að foreldrar þess beittu því ofbeldi. Foreldrar stúlkunnar komu með hana á læknavakt í Ósló á föstudaginn í síðustu viku og var þeim vísað beint á Ullevål háskólasjúkrahúsið. „Óljóst er hvort barnið muni lifa af, “ segir talsmaður lögreglunnar í Ósló í samtali við Verdens Gang. Í frétt VG kemur fram að barnið hafi verið með alvarlega áverka, en lögregla vill ekki gefa upp hvar á líkamanum þá sé að finna. „Frásögn foreldranna af því hvernig barnið hafði slasast og áverkar barnsins fór ekki saman. Tilkynnt var um málið til barnaverndaryfirvalda og lögreglu og voru foreldrarnir handteknir,“ segir Sturla Henriksbø, lögreglumaður hjá Óslóarlögreglunni í samtali við VG. Foreldrarnir hafa báðir verið úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald. „Þetta er alvarlegt mál þar sem allt bendir til að búið sé að beita varnarlausu ungabarni grófu ofbeldi. Mikilvægt er að upplýsa slík mál og því er þessi rannsókn í forgangi,“ segir Henriksbø. Lögmenn móðurinnar, 24 ára, og föðurins, 30 ára, segja skjólstæðinga sína neita sök í málinu. Faðirinn er ekki skráður til heimilis á sama stað og móðirin og barnið.Í frétt NRK kemur fram að foreldrarnir eigi ekki önnur börn og hafi ekki komið við sögu lögreglu áður.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira