Umboðsmaður svarar Suarez: Hann er lygari með sálræn vandamál Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. apríl 2016 09:15 Vísir/Getty
Luis Suarez, leikmaður Barcelona, er kominn í deilur við Daniel Fonseca, fyrrum umboðsmann sinn. Suarez var í sjónvarsviðtali í heimalandinu á miðvikudag þar sem hann var spurður út í þær sögusagnir að Fonseca hefði haldið eftir hagnaði af sölu Suarez til Groningen í Hollandi árið 2006. Suarez var þá að semja við sitt fyrsta félag í Evrópu, nítján ára. „Það er eitt af þeim málum sem hafa valdið mér vonbrigðum með Daniel,“ sagði Suarez sem hélt því fram að Fonseca skuldi sér enn 200 þúsund dollara vegna sölunnar. „Svo sagði hann mér að ég myndi þéna 30 þúsund evrur á mánuði en ég fékk tíu þúsund.“ „Hann reyndi að bæta mér það upp þegar ég fór til Ajax [árið 2007] en þetta hefur alltaf setið í mér. Af því að hann var sjálfur knattspyrnumaður og veit hvað það er erfitt fyrir unga knattspyrnumenn að afla sér tekna.“ Ummælin voru borin undir Fonseca sem svaraði fullum hálsi. „Hann er lygari. Hann er samviskulaus. Hann er að ljúga. Hann á í sálrænum vandamálum og gengur til sálfræðings. Það er þó ekki að virka,“ sagði Fonseca. „Ég þarf ekki á honum að halda og er frægur án hans. Ég ber ekki virðingu fyrir honum sem persónu og ég líð ekki vanvirðingu frá krakka sem þarf að nota puttana til að leggja saman tvær tölur. Hann veit ekki hvað fjórir plús fjórir eru mikið.“ Fonseca segir það alrangt að hann skuldi Suarez, þvert á móti skuldi Suarez honum 1,4 milljónir dollara. „Það er mér að þakka að hann þénaði sjö milljónir á fimm árum. Hann ætti að fagna mér. Hann ætti að hafa hugrekki til að senda lögfræðing á mig svo ég geti sagt öllum hvernig hann hlunnfór mig.“
Enski boltinn Mest lesið Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Fótbolti Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Fótbolti Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Handbolti „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Körfubolti „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ Íslenski boltinn Galin hegðun sjálfboðaliða Sport „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Íslenski boltinn Yfir þrjátíu milljónir vilja Mbappé í burtu Fótbolti Fleiri fréttir Valverde á spítala eftir önnur slagsmál við Tchouameni „Þetta er flókin staða“ Yfir þrjátíu milljónir vilja Mbappé í burtu Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Rússinn sem hrifsaði til sín sæti Donnarumma Tvísýnt með þátttöku Kristals í úrslitaleiknum: „Búinn að vera stórkostlegur“ Liverpool hættir við verðhækkanir Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Sjáðu Dembélé skjóta PSG áfram í úrslitaleikinn Slagsmál á æfingasvæði Real Madrid „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Uppgjörið: Víkingur-Breiðablik 2-4 | Rigndi mörkum í Víkinni City varð Englandsmeistari heima í sófanum Gylfi: „Dómararnir í þessum leik virðast ekki hafa almenna þekkingu“ „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum „Hefði átt að stela þessu í lokin“ „Vestmannaeyjakarakterinn sem skóp þetta“ PSG í úrslitaleikinn annað árið í röð Ósáttur við gæðin: „UEFA þurfti að stíga inn í“ Þór/KA - Stjarnan 2-2 | Sterk endurkoma hjá norðankonum Valur – ÍBV 2-3 | Nýliðarnir á toppnum með fullt hús stiga „Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Þrumuræða Óskars Hrafns: „Kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á okkur“ Má mæta Íslandi en myndi byrja HM í banni Linda Líf best: Ekki lengur óþekkt nafn „Lélegi leikurinn hans er sjöa“ Sagður þjást en vill enga vorkunn Sjá meira