Ráðist á starfsmann Barnaverndar Reykjavíkur Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. desember 2016 11:45 Starfsmaðurinn var í útkalli á heimili í Reykjavík þegar gestkomandi veittist að honum. vísir/gva
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú líkamsárás sem starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur varð fyrir í síðasta mánuði. Starfsmaðurinn var í útkalli á heimili í Reykjavík þegar gestkomandi veittist að honum. Sá var handtekinn í kjölfarið. Heimildir fréttastofu herma að heimilismaður hafi óskað eftir aðstoð lögreglu. Þá hafi starfsmaðurinn hlotið einhverja áverka, en ekki hafa fengist upplýsingar um alvarleika þeirra. Hann leitaði sér hins vegar aðhlynningar á slysadeild eftir árásina. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, forstjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið talin hætta á ferðum, og því hafi starfsmaðurinn farið einn í útkallið. „Það eru ákveðnar reglur um það hvernig við förum á vettvang. Við förum með lögreglu eða tvö saman, en þarna voru kringumstæður þannig að það var ekki von á að neitt svona gæti gerst. En þarna var um gest á heimilinu að ræða sem veittist að starfsmanninum,“ segir hún. Aðspurð segir Halldóra að fólki sé alltaf boðin áfallahjálp í tilfellum sem þessum. „Það fer í gang ákveðið ferli hjá okkur. Það er sérstök ofbeldis- og áreitinefnd innan velferðarsviðs og viðkomandi er boðið áfallaviðtal hjá utanaðkomandi sérfræðingi.“ Þá segir Halldóra að það hafi færst nokkuð í aukana að starfsfólk Barnaverndar verði fyrir aðkasti, hvort sem um sé að ræða líkamlegt ofbeldi eða andlegt. Það sé mikið áhyggjuefni og að bregðast þurfi við. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókn málsins vel, en tekin verður ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra að rannsókn lokinni. Árásarmanninum var sleppt úr haldi lögreglu eftir yfirheyrslur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira