Hvatningaverðlaun Öryrkjabandalagsins veitt í Hörpu í dag Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. desember 2016 15:57 Á myndinni eru verðlaunahafarnir Friðrik Sigurðsson, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Þorbera Fjölnisdóttir frá Tabú ásamt Árna Sv. Mathiesen frá Dagsól ehf./Next. Silja Rut
Hvatningaverðlaun Öryrkjabandalags Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Er þetta í tíunda sinn sem verðlaunin hafa verið afhent og er hönnuður verðlaunagripsins Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður. Megintilgangur verðlaunanna er að varpa ljósi á þá sem hafa með jákvæðum hætti stuðlað að einu samfélagi fyrir alla og voru verðlaunin veitt í þremur flokkum, flokki einstaklinga, flokki fyrirtækja og stofnanna og flokki umfjöllunar og kynningar. Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalagsins hélt ávarp á verðlaunaafhendingunni og sagði að árið 2016 hefði verið merkilegt í sögu mannréttindabaráttu fatlaðs fólks á Íslandi en þar vísaði hún til fullgildingar á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á Alþingi í haust. Ellen vék einnig að nýföllnum hæstaréttardómi í máli Salbjargar Óskar Atladóttur sem kvað á um að hún fengi ekki að velja að búa alfarið heima hjá sér og sagði að Öryrkjabandalagið harmaði þá niðurstöðu og sagði Ellen að enn væri mikilvæg vinna fyrir höndum.Hvatningaverðlaunin fengu:Í flokki einstaklinga fékk Friðrik Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, verðlaun fyrir störf sín í þágu fólks með þroskahömlun og aðstandenda þeirra. Hann hefur unnið mikið frumkvöðlastarf í málefnum fatlaðs fólks og verið óþreytandi í hugsjónastarfi sínu fyrir mannréttindum og sýnileika fatlaðs fólks.Í flokki fyrirtækja/stofnana fékk Dagsól ehf./verslunin Next verðlaun fyrir metnaðarfulla starfsmannastefnu sem meðal annars felur í sér að ráða fólk með skerta starfsgetu. Um 20% starfsmanna fyrirtækisins eru með skerta starfsgetu sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins. Aðgengi í verslun Next er til fyrirmyndar.Í flokki umfjöllunar/kynningar fékk Tabú verðlaunin fyrir fræðslu og markvissa umfjöllun um stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu. Tabú er femínísk hreyfing sem beinir sjónum sínum að margþættri mismunun gagnvart fötluðu fólki. Með umfjöllun sinni styður hreyfingin alla til þess að rjúfa þögnina og tala um það sem ekki má. Við athöfnina voru einnig afhentir styrkir ÖBÍ til þess íþróttafólks sem keppti á Ólympíumóti fatlaðra sem haldið var í Brasilíu í september. Í haust ákvað stjórn ÖBÍ að styrkja ólympíufarana um 1 milljón króna samtals. Hver ólympíufari fékk því 200.000 króna styrk frá ÖBÍ. Styrki fengu Helgi Sveinsson spjótkastari, Jón Margeir Sverrisson sundmaður, Sonja Sigurðardóttir sundkona, Thelma Björg Björnsdóttir sundkona og Þorsteinn Halldórsson bogfimimaður.Aðrir sem hlutu tilnefningar:Í flokki einstaklinga:Hanna Jónsdóttir fyrir frumkvöðlastarf í þágu fatlaðs fólks í Stykkishólmi og Karl Þorsteinsson fyrir sjálfboðastörf í þágu fatlaðs íþróttafólks. Í flokki fyrirtækja/stofnana: IKEA fyrir hvetjandi starfsumhverfi sem meðal annars felur í sér að ráða fólk með skerta starfsgetur og Útmeð´a, samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717– tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á hárri tíðni sjálfsvíga meðal ungs fólks og hvetja til umræðu um geðheilbrigði. Í flokki umfjöllunar/kynningar: Ferðabæklingar – fésbókarsíða fyrir ítarlega og virka umfjöllun um aðgengismál fatlaðs fólks og Upplifun fyrir alla – styrktarsöfnun fyrir Reykjadal sem haldin var á vegum meistaranema við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Mest lesið Bátar brenna í Bolungarvík Innlent Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Innlent „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Innlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Fleiri fréttir „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Sjá meira