Þetta var heilt yfir lélegt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. apríl 2016 06:00 Geir Sveinsson í leik með Magdeburg. vísir/getty
Eftir mikla óvissutíma spilaði íslenska karlalandsliðið gegn Noregi á sunnudag undir stjórn nýs landsliðsþjálfara, Geirs Sveinssonar. Undirbúningurinn var afar lítill - ein æfing á laugardagskvöld og það án nokkurra manna sem komu beint inn í leikinn á sunnudag. Ísland byrjaði mjög illa í leiknum og var sex mörkum undir í hálfleik en náði að rétta úr kútnum í síðari hálfleik. Niðurstaðan var fjögurra marka tap, 29-25. „Gærdagurinn færði okkur heilmiklar upplýsingar. En heilt yfir var þetta lélegt,“ sagði Geir í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það kom kafli um miðjan fyrri hálfleikinn þar sem við köstuðum þessu frá okkur. Það var óþarfi.“ Eins og gefur að skilja hafði Geir ekki mikinn tíma til að leggjast yfir leik íslenska liðsins og gerir sér grein fyrir því að það er heilmikið verk fyrir höndum. „Það er ekki í neikvæðri merkingu. Þó svo að ég hafi einhvern tímann þjálfað flesta þessa stráka þá þarf ég að kynnast þeim og þeir mér. Ég þarf að upplifa hvernig þeir eru sem leikmenn inni á vellinum og drengir utan hans. Ég þarf að skoða leik liðsins - hvað virkar og hvað ekki,“ segir þjálfarinn.Þurfum að koma vörninni í lag Veikleiki íslenska liðsins á EM í Póllandi var varnarleikurinn en Geir segir að það hafi verið byrjað að vinna í honum strax á fyrstu æfingu. „En við vorum ekki komnir með alla leikmenn þá og þær breytingar sem við reyndum að gera á varnarleiknum á æfingunnni skiluðu sér ekki nægilega vel í leiknum,“ segir Geir sem vill bæta leik liðsins almennt. „Það voru líka brotalamir í sóknarleiknum eins og sást á leik okkar í gær. Almennt vill maður, þegar maður kemur inn í lið, bæta sem flesta þætti við leik liðsins en ég væri að ljúga ef ég segði að það væri allt í lagi með varnarleikinn okkar. Við þurfum að koma honum í lag og æfingin í morgun gekk öll út á það. Við erum því, eins og er, að einbeita okkur frekar að varnarleiknum en öðrum þáttum.“ Ísland mætir Portúgal í undankeppni HM dagana 12. og 16. júní. Fram að því er hver æfing dýrmæt. Geir mun hafa þrjá æfingadaga hér á Íslandi í lok vikunnar en liðið kemur svo ekki aftur saman fyrr en 6. júní. „Við verðum bara að gera það besta úr því sem við höfum. Við erum með leikmenn sem hafa gæði og nú er þetta bara spurning um hvernig okkur tekst að ná því besta úr þeim. Það er vinna okkar Óskars Bjarna [Óskarssonar, aðstoðarþjálfara],“ segir Geir.Valdi hópinn áður en ég tók við Geir var þjálfari Magdeburg í Þýskalandi þar til 15. desember og var samningsbundinn liðinu fram í júní 2017. Eins og áður hefur komið fram hafði hann í hyggju að vera ekki í öðru starfi út samningstímann og „láta þá borga mér hverja einustu evru,“ líkt og hann sagði í samtali við Fréttablaðið á föstudaginn. En þá kom HSÍ til sögunnar og síðan þá hefur mikið breyst hjá Geir. „Þetta hefur verið hálf súrrealískt, síðustu dagar og vikur. Ég var í það fyrsta ekki 100 prósent viss um að þetta myndi ganga upp. Þannig að ég valdi þennan landsliðshóp sem ég vissi svo ekki hvort ég myndi á endanum stýra,“ sagði Geir. „Það var ekki uppi á borðinu að ég myndi þjálfa aftur í nánustu framtíð en svo varð þetta staðreyndin og þá tekst maður á við það af heilindum.“
Handbolti Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Leik lokið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Fleiri fréttir Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Sjá meira