Myndband af hópnauðgun veldur usla í Brasilíu Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2016 10:01 Árásin er sögð hafa átt sér stað í fátækrahverfi í Rio. Vísir/EPA
Lögreglan í Brasilíu leitar nú rúmlega 30 manna sem grunaðir eru um að hafa nauðgað 16 ára táningsstúlku í Ríó de Janeiro. Myndir og myndband af árásinni voru birt á samfélagsmiðlum og hefur árásin valdið usla í landinu. Internetátak hefur verið sett af stað vegna árásarinnar og félagasamtök hafa kallað eftir mótmælum gegn því sem kallað er „nauðgunarmenning í Brasilíu“. Árið 2014 voru 47,636 nauðganir tilkynntar til lögregu, en talið er að einungis 35 prósent nauðgana í Brasilíu berist til lögreglu.BBC segir frá því að stúlkan hafi sagt lögreglu að hún hafi farið í heimsókn til kærasta síns í fátækrahverfi í Ríó um síðustu helgi og þar hafi árásin átt sér stað. Lögreglan sagði vopnaða menn hafa ráðist á stúlkuna, en hún rankaði við sér næsta dag, nakin og í sárum. Nokkrum dögum seinna komst hún að því að myndefni af árásinni hafði verið birt á Twitter. Myndefnið, bæði myndir og myndband, var svo fjarlægt og notendunum eytt. Búið er að gefa út fjölmargar handtökuskipanir og þar á meðal á hendur kærasta stúlkunnar. Amma stúlkunnar segir fjölskylduna hafa horft á myndbandið. Þau hafi strax séð eftir því. Hún segir stúlkuna vera miður sín og í slæmu ásigkomulagi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Sjá meira